Hann hafði spurt. Við láum nakinn hlið við hlið og ég strauk höndinni gegnum hárið hans. Ég reyndi að finna upp svar sem myndi ekki særa hann, satt svar, en ekkert fannst. Lygi yrði það að vera, þrátt fyrir að ég vilji ekki ljúga að honum. Ég kyssti hann á kinnina, brosti ljúft til hans og svaraði.
"Já þú ert með stærsta typpið af þeim sem ég hef séð ástin mín".
Billi: Námundar þú svo að næstu tommu fyrir ofan?
Er samt ekki nákvæmast að búa til gifsmót og mæla svo hversu marga mL af vatni þarf til að fylla það?
Þú áttir frekar að segja: Þú ert með stórasta typpi í heimi. Það hefði Doritt gert.
já og í þessu tilviki notar Hóras bara dropateljara þegar hann á í hlut.
Auðvitað nota ég dropateljara! Þeir eru nákvæmir upp á 0,05 mL!
Þegar ég er spurður á förnum vegi um hvað ég ber neðanklæða þá vil ég geta veitt sem nákvæmastar upplýsingar! Ekki bara lengd og rúmmál, heldur líka teygjustuðul, sveifluvídd og skoppanleika
Annars las ég einu sinni umfjöllun um þetta málefni í einhverju kellingablaðinu.
Þar skrifaði kona nokkur að hún svaraði þessari spurningu alltaf þannig að gaurinn væri vaxinn eins og górilla, og að það þætti öllum gaurunum mjög uppveðrandi og fullnægjandi svar.
Hún hins vegar lét fljóta með þann fróðleiksmola að górillur eru í raun mjög lítt vaxnar niður, hlutfallslega miðað við stærð.
Téðan fróðleiksmola sagði hún víst reyndar aldrei gaurunum - heldur upplýsti bara um hann þarna í blaðinu - og ekki var laust við að greina mætti kaldhæðnislegan besserwisserisma í textanum.
Ég ætla rétt að vona að enginn af hennar fyrrverandi hafi lesið þetta blað.
Hóras: Þú verður þá að vera líka með lengd og ummál - því ef þú ert bara með rúmmál, þá veit maður ekki hvort hann er langur og mjór eða lítillog feitur.
Og sagði hann þér þá ekki að þú værir með stærstu píkuna, af þeim sem hann hefði séð? [glottir eins og sauður]
Spurði hann virkilega að þessu? Og svo blaðrarðu því í okkur?
Takk fyrir það annars.
Ætli það sé hreinlega ekki best að eiga skema í rassvasanum með öllum mögulegum mælingum
Ef stelpa segði mér að ég væri með stærsta typpi sem hún hafi séð, þá gengi ég útfrá því ósjálfrátt að hún væri sjúklegur lygari eða krónískur kattariðill.
Krónískur Kattariðill, ágætis nafn á aukaegói, ef ég væri svo harðsvíraður.
Við strákarnir ættum að kaupa slatta af þessum steypumótum hérna að neðan og beita tommustokknum við samanburðarmælingar.
Það var nú einu sinni einn drengur sem bað mig um að gefa skrímslinu einkunn.. [Skellihlær]
Þessi örsaga er guðdómleg.
Ég hef annars aldrei áttað mig alveg á af hverju karlmenn eru svona óskaplega uppteknir af þessum millimetrum til eða frá. Hvað þá draumar um óeðlilega stærð. Til dæmis þessir örfáu óheppnu með hnésíðu fjölskyldudjásnin... ef þeim risi einhvern tíma hold án þess að liði yfir þá (og þeir þar með gagnslausir) þá er engin kona innréttuð fyrir stjaksetningu upp undir þind eða þaðan af lengra.
Ja hérna mín...Ungir menn: yður ber eigi spyrja neinar heimskulegar spurngingar. Nema þér viljið að sé logið að yður.
Sniðugt væri að mæla á hverjum degi - á 3 tíma fresti og punkta hjá sér aðstæður (hlýtt/kalt, sturta/bað, o.sv.frv.)
Þá væri hægt að setja upp í línurit og finna út hvenær eða við hvaða aðstæður maður er mestur maður
Ætli það sé þá ekki á Viagra sem karlmennskan kemur í ljós...eða mestamennskan [glottir við tönn]
Annars veit maður nú ekki hvers lags minnimáttarkennd það er að liggja nakinn uppi í rúmi og spyrja svona. Ætli það sjáist ekki frekar á ásjónunni hversu maður bar af...ef afburðurinn var þá þó nokkur.
Er það ekki rétt athugað hjá mér að breiddin skiptir miklu meira máli en lengdin? Ef hægt er að fullnægja konu með putta eða tungu, skiptir lengdin varla máli.
Fyndið hjá þér að deila þessu með okkur. [Hlær]
Varla skiptir breiddin svo miklu máli ef putti dugar. Það er þá tæknin sem gildir, hlýtur að vera.
Einstein og Jarmi, Aulinn minntist ekkert á það hvort stærðin hefði skipt hana nokkru máli.
Auli, "neyðin" er rituð svo, með einu n-i í lokin.
Já, reyndar er hægt að beygja puttan og því er hann fimur sem limur. Smá orðaleikur þarna. Tæknin hlýtur að vera aðal atriðið.