Ég rak sálfræðinginn minn. <br /> Hann er fæðingarhálfviti!
Ég fór til sálfræðings í dag. Og getiði hvað! Hann sagði að ég væri með mikilmennskubrjálæði. ÉG!!! Með mikilmennskubrjálæði?! Þetta er náttúrulega út í hött.
Veit hann ekki hvað ég er frábær?
Veit hann ekki hvað ég er mikill snillingur?
Veit hann ekki hvað ég er æðislegur?
Veit hann ekki að ég er bestur?
Veit hann ekki hver ég er?!?!
Ég þoli ekki svona mannvitsbrekkur, sem halda að þær viti allt!
Ég þoli þær ekki!
ÞOLI ÞÆR EKKI!!!
Djöfulsins fáviti ertu! - Borgarðu einhverjum illa gefnum sjúkling fyrir að sálgreina þig? - Ég skal veita þér greiningu frítt - þú ert fáviti!!!
Já, fólk sem heldur að það viti allt fer virkilega mikið í taugarnar á okkur sem vitum allt... [sest niður hjá blóðugu og starir þegjandi út í loftið]
[Sest á milli stelpnanna, færir þeim rauðvín og starir með þeim þegjandi út í loftið]
Akkúrat GEH! Orð í tíma töluð. [Setur GEH ofarlega á listann yfir skemmtilega gestapóa]
Sálfræðingar eru bara fúlir út í lífið því þeir meikuðu ekki skólaíþróttirnar(svona eins og í amerískum bíómyndum) og því er það augljóst að hann var í raun að sálgreina sjálfan sig. Verst að þú rakst hann ekki...Í GEGN!!
Sko, sálfræðingar, það er þetta lið sem er svo brenglað að það hélt að það myndi kannske batna eitthvað við að læra þessi tilbúnu vísindi sem heila sálfræði. Svo eftir að hafa eitt einhverjum fánýtum námsárum í að skoða eihverjar fánýtar atferliskannanir fara þeir út á vinnumarkaðinn og halda sig einhverja siðapostula sem geta sagt okkur hinum til.
Ég vil benda fólki á að ef það finnur fyrir einhverri yfirþyrmandi þörf til að hella úr sálartetrinu þá er til gömul stétt hæfra manna sem kunna vel að hlusta. Þeir heita prestar og þeir taka ekkert fyrir. Allavega ekki í söfnuði okkar Vatne-manna.
Nei, Donni minn, þú átt þetta ekki skilið. Ef það er eitthvað sem hrjáir þig þá ertu alltof hógvær.
Sundlaugur minn. Þú ert mikill maður líka eins og ég og ég færi þig hér með næstefst á listann yfir skemmtilega Gestapóa (Ég er náttúrulega efstur).