Vona að þið séuð öll kát og sæl í ykkar hjörtum!
Sælt veri fólkið!
Það hefur eigi farið framhjá mér að þér eruð öll ríkulega og fagurlega myndskreytt. Hvernig skyldi maður eins og ég svo bera sig að við að nálgast slíka myndskreytingu?
Með því að sanna okkur hinum til um ómældar gáfur og orðsnylld! Gangi þjer vel.
Sælir félagar, gaman að kynnast svo veglyndum og ljúfinborulegum mannfögnuði sem hér virðist ríkja, en eigi er örgrannt um að leiðbeiningar yðar séu í óskýrari kantinum, í það minnst fyrir grænjaxl eins og mig.
Já, ætli þetta sé ekki alteregó. Skrifaðu 10 innlegg á spjallið, Jón Helgi, og farðu svo í uppsetninguna.
Þú þarft að skrifa 10 sinnum á spjallþræðina - minnir mig - það eru leiðbeiningar einhvers staðar á svæðinu - svo geturðu valið þér mynd úr safninu - vertu bara duglegur að lesa snilldina frá okkur hinum áður en þú lætur ljós þitt skína of mikið! Of hafðu ekki áhyggjur af strákunum - þeir láta stundum eins og kjánar.
Hvaða vitleysa - er aldrei í fýlu! En það eru nokkrir aðilar hér sem þarf að passa sig á - þú átt eftir að rekast á þá og átta þig fyrr en síðar... Vertu annars bara velkominn!
Jón Helgi Sölmundarson.. Er ekki einfaldast fyrir þig að fá mynd úr myndasafni lögreglunnar? Þetta nafn er vel þekkt á þeim bæ.
Ljúfinborulegur? Ertu að segja að ég sé hommi?
Svo getur þú sjálfur verið veglyndur!
Veglyndur: einstaklingur sem hefur lund á við samgöngumannvirki.