— GESTAPÓ —
Félagsrit:
Jón Helgi Sölmundarson
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Pistlingur - 5/12/04
Ja hérna

Vona að þið séuð öll kát og sæl í ykkar hjörtum!

Sælt veri fólkið!
Það hefur eigi farið framhjá mér að þér eruð öll ríkulega og fagurlega myndskreytt. Hvernig skyldi maður eins og ég svo bera sig að við að nálgast slíka myndskreytingu?

   (1 af 1)  
5/12/04 18:02

Smábaggi

Þú veist það, krumpa.

5/12/04 18:02

hundinginn

Með því að sanna okkur hinum til um ómældar gáfur og orðsnylld! Gangi þjer vel.

5/12/04 18:02

Jón Helgi Sölmundarson

Sælir félagar, gaman að kynnast svo veglyndum og ljúfinborulegum mannfögnuði sem hér virðist ríkja, en eigi er örgrannt um að leiðbeiningar yðar séu í óskýrari kantinum, í það minnst fyrir grænjaxl eins og mig.

5/12/04 18:02

hundinginn

Þetta rjettlætir nú alter ego held jeg.

5/12/04 18:02

Smábaggi

Já, ætli þetta sé ekki alteregó. Skrifaðu 10 innlegg á spjallið, Jón Helgi, og farðu svo í uppsetninguna.

5/12/04 18:02

krumpa

Þú þarft að skrifa 10 sinnum á spjallþræðina - minnir mig - það eru leiðbeiningar einhvers staðar á svæðinu - svo geturðu valið þér mynd úr safninu - vertu bara duglegur að lesa snilldina frá okkur hinum áður en þú lætur ljós þitt skína of mikið! Of hafðu ekki áhyggjur af strákunum - þeir láta stundum eins og kjánar.

5/12/04 18:02

hundinginn

Getur þú það ekki. Viljum við ekki sjá þig!

5/12/04 18:02

Jón Helgi Sölmundarson

Hjartans þakkir, þið veglyndu sambýlingar og netsystkin.

5/12/04 18:02

hundinginn

Ánetjaðir vinur. ÁNETJAÐIR!

5/12/04 18:02

Smábaggi

Krumpa getur verið dálítið fýld stundum líka.

5/12/04 18:02

hundinginn

Smábaggi er vírus. Það eru ekki til varnir gegn því samt.

5/12/04 18:02

krumpa

Hvaða vitleysa - er aldrei í fýlu! En það eru nokkrir aðilar hér sem þarf að passa sig á - þú átt eftir að rekast á þá og átta þig fyrr en síðar... Vertu annars bara velkominn!

5/12/04 18:02

hundinginn

Finndu reypin sjálft bara...

5/12/04 19:00

Vímus

Jón Helgi Sölmundarson.. Er ekki einfaldast fyrir þig að fá mynd úr myndasafni lögreglunnar? Þetta nafn er vel þekkt á þeim bæ.

5/12/04 19:00

Texi Everto

Ljúfinborulegur? Ertu að segja að ég sé hommi?
Svo getur þú sjálfur verið veglyndur!
Veglyndur: einstaklingur sem hefur lund á við samgöngumannvirki.

Jón Helgi Sölmundarson:
  • Fæðing hér: 18/5/05 19:56
  • Síðast á ferli: 19/5/05 10:04
  • Innlegg: 0