Fjörugur hundur orti þetta magnaða kvæði til mín í draumi. <br /> <br /> Er hulin merking hér að baki?
Öskrar klæmið svín í synd
sækir að því blóðug kind.
Á borði dansar helsjúk hind
í hryllings splatter söngvamynd.
Ertu að senda þetta að handan, Sæmi eða ertu enn hérna megin grafar? Þú hefur ekki sést svo lengi.
Innihald kvæðisins, svo og löng fjarvera yðar, bendir til að hin hulda merking sje að yður hafi verið rænt af óvinum ríkisins.
PS Velkomnir hingað á ný.
Jamm, Vímus farinn að pússja hestaviagra aftur. Kallar þetta ekstasí. hlebbí gleypti þetta, blánaði allur upp og er nú með Sandgerðisæluna. Slokknaði alveg á honum þegar hann sá dansandi ísbirni syngja barngælur á þýsku.
Allt er hirt og allt er birt,
aldrei hlé á leirburðe.