Eðli mitt er þannig að ég er alltaf í massa-stuði og reyni að deila gleðifræjum mínum út um allt.
Fræðasvið:
- Grunnskólinn í Afríku
- Ruslaskólinn í Mongólíu
- Ruslagráða 3 (Harvard)
- Ruslanámskeið með Bobby Fisher
- Garbage tónleikar í Danmörku
- Atvinnunámskeið í pizzasendingum
Æviágrip:
Eftir að hafa skrifað ævisögu mína á hrísgrjón 40 ára gamall fór ég að reyna að selja hana til áhugaverðra aðila um allan heim. Hrísgrjónið fjöldaframleiddi ég en þetta var það fyrsta af sinni tegund í öllum heiminum. Síðan fór ég og gerðist ruslamaður í Mongólíu og varð áhrifamikill í því starfi, ég réð hvar ruslið átti að vera og hvar ekki. Nú er ég eini eftirlifandi meðlimur ruslagengsins sem var ein áhrifamesta mafía í Mongólíu á sínum tíma. Ég var leystur úr fangelsi í Nepal fyrir nokkrum vikum og var fluttur til Íslands þar sem ég fæ að ganga frjáls og stunda Baggalút af fúsum og frjálsum vilja.