Bókaútgáfan Isak Dinesen Group gefur út nokkrar bækur um þessi jól.
Ti minuter hver dag! Har du tid?
eftir Aage Eyfjörð
Herra Færeyjar/Grænland hjálpar þér að komast í form með einföldum kviðæfingum.
Aage er augljóslega fagurlimaðasti einstaklingur þessarar veraldar. Ef þú fylgir ráðunum í þessari bók þá mun þér ganga vel!
4 stjörnur af 5! Hefði fengið fullt hús ef þeir hefðu munað eftir því að þýða titilinn úr dönskunni.
- Sölvi Fannar, (sem er sko með sixpack)
Fótanuddtækið – BÓKIN
eftir Jón Óttar Ragnarsson
Loksins er hún komin, bókin um fótanuddtækið. Hið kunna athafnaskáld, næringarfræðingur og Íslandsmeistari í badminton kvenna fræðir okkur um ýmsa óþekkta eiginleika þessa frábæra tækis.
Þú lærir meðal annars hvernig tengja megi það við Soda Stream vél til búa til úrvals martini.
101 faux pas – vandamál og lausnir
eftir Jónínu Ben
Reddaði mér alveg!
- Ólafur Ragnar Grímsson
Skyldueign!!!
- Halldór Ásgrímsson
Hvað þýðir þetta?
- Guðni Ágústsson og Jón Kristjánsson, eftir að hafa borið saman bækur sínar.
Uppseld (skáldsaga)
eftir Héðinn Vaxmann
Ung stúlka kemur í fyrsta sinn á malbikið eftir að hafa alist upp í Kópavogi. Hún kynnist glamúr borgarinnar fljótt og gengur í saumaklúbb bekkjarsystra sinna í Kvennó. Úr þessi færist hún svo smám saman í meþadónneyslu og endar í nunnuklaustri í Hafnarfirði.
Stórkostlegt ferðalag
- Halldór Vaxmann
Epíka!
- Hallgrímur Helgason
Frábært - ekki ósvipað bókatíðindum bara - eina bókin sem mig virkilega langar í þessi jólin er endurútgáfa á hundgamalli bók...
Þess ber að geta að þegar ég las heiti félagsritsins fyrst þá sá ég Jólabrækur Isaks [hlær eins og hross í haga]