sjötíuogtíu.
Já, það er rétt. Svona hljómar heilinn þinn þegar hann skilur ekki einfaldar fyrirsagnir! hahaha!
Það var annars pollur á miðju dansgólfinu. Mér tókst að stíga í hann, en stelpan í hvíta kjólnum hafði dregið stól í pollinn og dansaði uppá honum. Sumir tóku ekki einu sinni eftir pollinum, en hann var um tveir fermetrar að flatarmáli og um 5 sm djúpur, þar sem hann var dýpstur. Hvaðan þessi pollur kom, er erfitt að segja til um, en uppi voru vangaveltur um að hann væri blanda af hlandi og saur. Ég vona ekki, þar sem ég steig í hann. Ég vil meina að hann hafi komið úr fortíðinni, ólíkt flestum rigningarpollum. En þetta var enginn venjulegur pollur.
Í miðjum pollinum var ekkert þyngdarafl.
Var þetta bara einn pollur?
Getur verið að það hafi verið annar pollur undir þeim sem þú sást?