— GESTAPÓ —
RokkMús
Óbreyttur gestur.
Dagbók - 4/12/06
Sælt verið fólkið.

Mikið er gaman að vera komin hingað aftur eftir langt frí.
Það er margt og mikið búið að gerast meðan ég var í burtu bæði hér á Gestapó og í kjötheimum.
Í gær fór ég á tónleika með tónlistarkonunni Björk og fylgdarliði. Voru tónleikarnir velheppnaðir og stórskemmtilegir.
Einnig er ég búin að fermast er þá komin í tölu fullorðna.
Einnig eru fleiri myndasögur búnar að bætast við safn mitt nú á ég 27 myndasögubækur.

Já það er gaman að vera komin aftur og ég vona ég sé loksins komin til að vera.

   (1 af 3)  
4/12/06 10:01

Grágrímur

Fínt að sjá þig, en af hverju eyddirðu öllum gömlu ritunum?

4/12/06 10:01

B. Ewing

Velkomin og til hamingju með fullorðinstöluna. [Bætir við rós í hnappagatið] Láttu endilega sjá þig oftar, það mættu fleiri gera.. [Starir þegjandi út í bláinn og flautar sakleysislega]

4/12/06 10:01

Tigra

Músla!
Velkomin aftur!
Þín hefur verið saknað.

4/12/06 10:01

krossgata

Gleður mig að kynnast þér?

4/12/06 10:01

Offari

Velkomin hetja gaman að sjá þig nú þarf ég að fara passa munninn á mér.

4/12/06 10:02

Anna Panna

Nei hæ! [Vinkar]

4/12/06 10:02

Nermal

Eyddir þú þá fermingarpeningunum í myndasögublöð?

4/12/06 11:00

Limbri

Það er ánægjulegt að fylgjast með æsku Gestapó eldast og vaxa. Gangi þér vel í lífinu Rokkmús.

-

4/12/06 11:00

Tina St.Sebastian

Björk? OJ!
Velkomin aftur, samt.

RokkMús:
  • Fæðing hér: 1/2/05 18:55
  • Síðast á ferli: 30/1/08 22:55
  • Innlegg: 38