Mikið er gaman að vera komin hingað aftur eftir langt frí.
Það er margt og mikið búið að gerast meðan ég var í burtu bæði hér á Gestapó og í kjötheimum.
Í gær fór ég á tónleika með tónlistarkonunni Björk og fylgdarliði. Voru tónleikarnir velheppnaðir og stórskemmtilegir.
Einnig er ég búin að fermast er þá komin í tölu fullorðna.
Einnig eru fleiri myndasögur búnar að bætast við safn mitt nú á ég 27 myndasögubækur.
Já það er gaman að vera komin aftur og ég vona ég sé loksins komin til að vera.
Velkomin og til hamingju með fullorðinstöluna. [Bætir við rós í hnappagatið] Láttu endilega sjá þig oftar, það mættu fleiri gera.. [Starir þegjandi út í bláinn og flautar sakleysislega]
Það er ánægjulegt að fylgjast með æsku Gestapó eldast og vaxa. Gangi þér vel í lífinu Rokkmús.
-