Hin ánægjulega stund er upprunnin og því tilkynnist hér með að;
Honní æm hóm.
Velkomin... [reynir að fela slóð lélegra stafsetninga og bágs málfars]
[Sjer málfar/tungumál fjelagsritsins og hrökklast afturábak og hrasar við]
Vjer bjóðum yður velkomna til baka.
Ekki skrýtið að Ísdrottningin sé snúin aftur, enda nálgast veturinn óðum.
Já... hún hlýtur að hafa lekið í felur í sumar og er loksins komin aftur þegar það er nægilega kalt fyrir hana að vera úti.
[Ljómar upp]
Velkomm bekk. (Er ekki góður í útlenskuni, vona að þetta sé rétt skrifað)
Velkomin Ísdrottning. Vonandi nærðu fljótlega tökum á íslenzkunni. (Ætli hún sé búin að vera erlendis í allt sumar?)
Þar sem ég sit hér og nýt hvítvíns í rólegheitum, klökk yfir hlýjum móttökum ykkar, rennur upp fyrir mér hve mjög ég hef saknað ykkar [einmana tár fellur af hvarmi og hratar sem ísmoli ofan í glasið] Skál mínir yndislegu vinir, skál [knúsar og kyssir viðstadda]
Skabbi hefur orðið ber að bæði undirferli og ósannindum. Það er miður. Vilji hann öðlast uppreisn æru ætti hann að draga sig út úr umræðunni hið snarasta.
jæja nú er bara að skella í lága drifið og halda á jökulinn. Velkomin kæra Ísdrottning.
Komdu fagurlega fagnandi, ágæta Ísdrottning.
Gaman að sjá þig á ný.
Þá er friðurinn úti. En alltaf gott að fá fleiri kvensur til baka af fjöllum. Velkomin.