Þetta var besta kvöld ævi minnar!
Dr. Gunni spilaði einhver lög - innblásin af plötunni "Þjóðhátíðarljóð 197*" sem er mun betri- og var fínn. Baggalútur spilaði slatta af snilld - enda ekki við öðru að búast- og Númi og Spesi voru sérlega sexí.
Svo komu Hayseed Dixie á sviðið, trylltu lýðinn og eitthvað. Svo fór ég baksviðs og fékk eiginhandaráritanir og hékk svo með bandinu og kjaftaði.Og fékk bjór.
Í samantekt: Ég fokking rokka! Éééééééééééééééé!
Dr. Gunni er ekki tónlistarmaður. Nema þá að Davíð Oddson viðurkenni fátækt.
Vjer tökum undir með Billa og Upprifnum (nema ef um var að ræða tónlist er eingöngu var við hæfi kvenkyns Gestapóa) [Ljómar eigi upp].
Þetta var fínt kvöld... fyndnir textar hjá Dr. Gunna (það sem maður heyrði nógu greinilega)... Baggalútur stóð fyrir sínu og Hayseed Dixie voru bara nokkuð góðir...
Ég fór á Grænan kost... hélt að allir væru þar.. það var hlegið að mér þegar ég bað um Svið... skrítið afgreiðslufólk...
Það var frábær upplifun að sjá þessa snillinga í Baggalút og HD í návígi.
Gleymist seint.
Verst að drgunni og félagar skyldu skemmta sér á minn kostnað