Ég skrapp í göngutúr í gærkvöldi.
10 kg kartöflur
23 bananar
1/2 kg græn vínber
1 stór krukka ammrískt mæjónes
2 (óútrunnar) möndlukökur
6 pokar Ömmu kleinur
2 appelsínur
1 agúrka
ca. 2 kg mandarínur
1 stór hvítkálshaus
Þess má svo geta að hefði ég viljað (og haft einhverja þörf fyrir) hefði ég getað tekið tvo fulla kassa af mandarínum til viðbótar, einn kassa af banönum, fimm eða sex kleinupoka - og 11 mæjóneskrukkur.
---
Hvað á ég svo að hafa í kvöldmatinn?
[slefar]... maukaðu vínberin og mandarínuna og smurðu á bananananana...
sjóddu nokkrar kartöflurnar og hvítkálshausinn í mauk og berðu fram með möndlukökunni...
rífðu niður appelsínurnar og stráðu yfir ömmukleinurnar... tættu niður agúrkuna og blandaðu við ammeríska mæjónesið.. svo úr verður ídýfa og dýfðu síðan kartöflurnar í...
Bjóddu mér síðan í mat...
Hvað sem þú gerir, ekki dýfa kleinunum í mæjónesið...
Verði þér annars bara að góðu!
Ég mæli með ávaxtarétti því kartöflurnar er hægta að geyma og bakkelsið má frysta.
Ein spurning fyrst. Fyrst eini hluturinn sem tekið er fram að hafi ekki verið útrunnin er möndlukökur, var allt hitt þá útrunnið?
Hvernig væri að bjóða manni í mat?
Hefur þú nokkuð tékkað á gámum Lyfju eða Lyfja og heilsu?
Kleinurnar voru á síðasta söludegi, sem og mæjónesið, en grænmetið og ávextirnir voru -eins og gefur að skilja- ódagsett.
Þá: Saxa hvítkálið fínt og hræra majói saman við.
Gera kartöflu ofnrétt úr öllu hinu, nema mandarínunum og möndlukökunum.
Möndlukökur í eftirrétt og mandarínur í snakk meðan þær endast.
Kartöfluofnréttur úr kleinum, kartöflum, banönum,vínberjum, appelsínum og gúrkum? [Klórar sér í hausnum]
Ég skil að Tina kanski á erfitt með að fá hnútana að ná saman og notfærir sér gnægtarhorn gámsins enn finst þó til háborinnar skammar að góðum mat sé hent . meðan stór hluti heimsins drepst úr húngri
Æ, já það voru kleinur þarna. Þetta er ekki alveg nógu góð samsetning. Settu kleinurnar á snakklistann. Hitt gæti alveg virkað. (En ég myndi ekki nota alla þessa banana í einn rétt eða allar þessar kartöflur). En ef þú átt hveiti, sykur, matarsóda og egg má baka þetta fína bananabrauð.