Ég nenni ekki að þýða þetta, en fjandinn hafi það, ég leggst ekki svo lágt að leggja þetta fram hér á engilsaxnesku. Ergo: tengill!
Tilkynning um uppákomu (Skal ekki rugla saman við tilkynningu um uppáFERÐ)
Narfi, það er tengill þarna - Tilkynning um uppákomu, rétt fyrir neðan myndina. Ýtið á hann og þér munuð finna að vit er í þessum pistlingi.
Bölvuð leti er þetta! Er þetta bara ætlað þeim sem eru enskumælandi?
Ég kýs að túlka myndina og sýnist mér að hér sé á ferðinni tilkynning um að saumaklúbbur kynskiptinga sé á næstunni. Ég held ég sleppi því að mæta en þakka boðið [Hlær hrossahlátri].
já þakka þér fyrir Þarfagreinir. nú skil ég þetta betur en ég held nú samt að ég fylgi dæmi Sæma og sleppi því líka að mæta.
Eigi mætum vjer í orlofsferð húsmæðra eins og oss sýnist hjer vera um að ræða. Fylgjum vjer þannig fordæmi Sæma og Narfa.
Mig langar að mæta! Þakka þér boðið Tina mín. Ég á samt eftir að gá hvort dagsetningin hentar mér. Ennfremur á ég eftir að gá hvort ég geti grafið upp þematengdan klæðnað. [Fer að skoða málið]
Mér sýnist þetta vera einmitt partýið fyrir mig! Endilega láttu mig vita þegar af verður.
Ef ég kemst þá mun ég mæta sem afdankaður karlfauskur sem trúir því að kerlingar séu ekkert nema verkfæri sem beri að nota sem mest til að þjóna karlmönnum. (ég er samt ekki þannig...)
Piff. Þið erð að sjálfsögðu velkomin Hexia og Ívar, enda vart hægt að finna jafn náttúrulega hallærislegt fólk. [Glottir eins og fífl]
Má ég kom þó ég sé ekki hallærislegur?
Er þó ljótur og reyni ávalt að vera leiðinlegur, en óvitlaus með víni.
[Íhugar að fara í fýlu út í Tinu og mæta eins og glæsimódel. Hættir við því hún veit að slíkt er vonlaust, ákveður í staðinn að mæta í sínum venjulegu fötum til að undirstrika það sem Tina sagði. Fær efasemdir um að slíkt væri gáfulegt. Verður ringluð]