Fattar fólk virkilega ekki muninn?!
Ég var að leita að upplýsingum á textavarpi Rúv um daginn og rak augun í auglýsingu neðst á síðunni sem ég var að skoða: Meet the Fuckers.
Átti væntanlega að vera Meet the Fockers, framhaldið á hinni ágætu mynd Meet the parents þar sem hálft grínið snérist einmitt um þetta voðalega nafn sem persóna Ben Stillers bar en mér er spurn, hvernig er hægt að gera þessa villu?! Er kannski kominn tími á að ráða málfarsráðunaut í útlensku til stofnunarinnar? Eða kannski var þetta viljaverk textavarpsinnsláara sem var búið að reka og honum orðið alveg skítsama um starfið, hver veit, mér fannst þetta samt bara fyndið!
Nei, þetta var ekki villa. Um er að ræða 'erótíska' útgáfu af fyrirmyndinni, og er hún væntanleg í öll betri kvikmyndahús landsins innan tíðar. Í aðalhlutverkum eru Peter North og Sylvia Saint.
Ah, auðvitað... Á maður ekki að kíkja á það?
*fer í síðan frakka og setur á sig hatt og býr sig undir að fara í bíó*
Ekki margir sem að vita það, en Sylvia Saint er frá Sovét, sem sagt eign Afturhaldskommatitts.