Já, ég mæli eindregið gamla góða Svampi því ég sat varla á mér alla myndina. Það mætti segja að ef ég gæti þá væri ég búin að hlæja af mér rassinn! Svampur sýgur í sig athygli allra í salnum og fær alla til að hlæja. David Hasselhoff sýnir snilldarleik í myndinni og myndin gæti varla gerst súrari. Það mætti gefa henni 43 apa og 2l af mysu. En á bagglút gef ég henni 4*.
Rugl og vitleysa, naturligvis er „klekjaðist“ „klókst“ á íslensku, sbr. klekjast, klókst, klukumst, klokist.
Persónulega ætla ég að sjá myndina með íslensku tali, þar sem Davíð Þór talar fyrir fúla...hvað heitir hann? Sigmar?
Ég hef séð örlítið úr þáttunum um Sponge Bob ásamt örlitlu úr bíómyndinni. Mér leist vel á þann anarkíska húmor sem var í gangi. Þetta er víst voða vinsælt.
Takk fyrir ábendinguna ísdrottning kær. og já hún hentar öllum á öllum aldri, ekkert klúrt og oft svona kjánalega fyndin sem krökkum finnst mjög skemmtilegt... oftast allavega :D
Þó svo að klúrt sé fínt af og til eða ofast, jafnvel alltaf... [setur upp perrasvipinn fræga]