Örlítil tilkynning um að ég sé ekki dauður.
Það tilkynnist hér með opinberlega að ég er ekki dauður.
Góð þykja oss tíðindi þessi. Yður var þá semsagt ekki rænt af óvinum ríkisins í Ulan Bator ?
Það er ekki kalhæðni þegar ég fagna því. Því tilkynnist það hér með opinberlega að ég fagna því.
Ég verð að viðurkenna að sögurnar frá Ýsufirði eru margar andskoti ótrúlegar og ég hef stundum fengið þá flugu í höfuðið að þú sért hraðlyginn og þessvegna hvarflar það að mér að þú ljúgir því að enn sértu með lífsmarki.
[Klökkum rómi] Mikið er gaman að sjá hve margir taka þessum fréttum vel.
Ég er sum sé sloppinn frá óvinum ríkisins í Ulan Bator. Og þú, efahyggjumaðurinn Vímus, ég er ekki svo hraðlyginn. Það gerist bara svo margt ótrúlegt á Ýsufirði. Já, og þú, Dordingull, ég heiti Sundlaugur, ekki Sundraugur.
Nú ætla ég að vera töff og fara að leika.
Hann lifir ....húrra húrra húrra......Velkominn heim minn kæri...Skál vinur. [felur lifnipilluglasið og gengur blístrandi í burtu]
Þú ert semsagt ekki dauður, ég veit ekki hvað mér finnst um það. Ég er hlutlaus.
Til hamingju með þessa uppgötvun! Það flögraði reyndar að mér um daginn að ég væri ef til vill dauð...