— GESTAPÓ —
Barbapabbi
Friđargćsluliđi.
Fastagestur.
Sálmur - 1/12/04
Umhleypingar í umferđ

Ţađ gengur nú ýmislegt á í slabbinu vćtusama vetrarmorgna ţessa dagana.

Díselbauliđ bylur ţá
byrjađ er ađ rćsa,
einnig bensínbikkjan má
brenndu lofti fnćsa.

Malbikssvínin fús og frá
forarpoll'um skríđa,
drullumalli drjúgust sá
dreifist slabbiđ víđa.

Svell um dansa dekkjakýr
drynja ţar og spretta.
Göslast ţessi götudýr
úr gúmmíklaufum sletta.

   (35 af 49)  
1/12/04 06:01

Skabbi skrumari

Alltaf jafn skemmtilegar myndir sem ţú smíđar međ kveđskapnum... salút

1/12/04 06:01

Sundlaugur Vatne

Góđur, Barbapabbi, verulega góđur.
Ţađ er lifandi skáldskapur sem skapar stöđugt nýtt myndmál. Vćri ég međ hatt tćki ég ofan

1/12/04 06:01

Heiđglyrnir

Er međ hatt tek ofan...

1/12/04 06:01

Galdrameistarinn

Snilld.

1/12/04 06:01

Golíat

Tímamóta kveđskapur.
Hefur engum framtakssömum dottiđ í hug ađ safna helstu skáldskaparperlunum hér saman og gefa út á hefti svo tölvuheftir og ađrir fái notiđ?

1/12/04 06:01

Nafni

Jú, jú, -----helvíti gott.

1/12/04 06:01

Barbapabbi

Ég bukta mig og beygi, bestu ţakkir f. hóliđ. (Mađur fer kannski ađ draga saman í hefti, gćti heitađ "Barbabögur" ;o) )

1/12/04 06:01

Hakuchi

Ekki óvitlaus hugmynd Barbapabbi. Bögur ţínar standa höfuđ og herđar yfir ţađ drasl sem ratar í útgefnar ljóđabćkur nú til dags.

1/12/04 06:01

Barbapabbi

"ekki óvitlaus" en ţađ er sem sagt "vitlaus", - heyrđu ţetta var nú óţarfi! :)

1/12/04 06:02

Smábaggi

*Hlćr ađ tvödöldu neituninni*

Annars frábćr kveđskapur hjá ţér. Vildi ađ ég gćti ort svona, ekki bara ţessar tvćr vísur sem tók mig marga daga ađ hnođa.

1/12/04 06:02

Smábaggi

"Tvöföldu neituninni" meina ég. *Bölvar ritstjórn fyrir kerfiđ*. Ekki nóg međ ađ ekki sé hćgt ađ leiđrétta og laga, heldur eru engar sviđslýsingar hérna.

1/12/04 06:02

Skabbi skrumari

Ég myndi kaupa bókina... ţú gćtir selt helling hérna er ég viss um...

1/12/04 07:00

Z. Natan Ó. Jónatanz

Ég er mjög hrifinn af ţessu. Einkar skemmtilegt líkingamál ađ ljá bílamaskínunum dýrslega eiginleika...
- Skálút -

1/12/04 07:01

Rasspabbi

Stórfenglegt!
Skál fyrir hirđskáldinu!!!

Barbapabbi:
  • Fćđing hér: 13/8/03 22:31
  • Síđast á ferli: 9/2/14 00:46
  • Innlegg: 362
Eđli:
HippHippHipp
Frćđasviđ:
Barbabrögđ og Bragbrellur
Ćviágrip:
fćddist hérna forđum daga fullur var og hló af ţví ţetta’er sígild saga svo ađ lokum dó