Assgoti varstu snöggur að bregðast við. Ég vissi ekki að þú værir aukasjálf fastagests, hélt bara þú værir fásénn orgínal.
Annars, Siffi, hvað á það að þýða að taka þessu svona illa? Ég sem skrifaði rit mitt þér til heiðurs af óblandinni virðingu. Tribute kallast þetta á útlenskunni. Svo er bara drullað yfir mann í orðsins fyllstu. Svona eru laun heimsins, sei sei.
Fyrst að oflof er háð, er þá ekki ofníð ást? Nei ég segi nú bara svona því að það níðast allir á mér eins og þér hlebbi minn.
Þú segir nokkuð, Jarmi - en þá hlýt ég að hafa þeim mun meiri áhyggjur af hjartanu hér að ofan. Svona getur maður alltaf fundið eitthvað til að fara í mínus yfir ef maður leggur sig í framkróka.
Tekur enginn eftir því að Sigfús hefur lært nýtt orð? Félagsritið heitir ekki Sigfús eins og venjulega.
Svo lengi sem hann hefur innstungu við...klóna...
Getur Sigfús stungið sjálfum sér í samband? Eða jafnvel í samband við sjálfan sig - eða erum við þá komin út í einhverskonar fjöltengisperverzku?
Rafmagnað félagsrit... ég er bara í losti yfir þessu... [titrar eins og rafall í spennustöð]...
Jah, Jóakim, vinur minn, er horfinn á braut. Ég er einmana rekald og slæ ekki hendinni við nýjum vin, jafnvel þótt hann sé svolítið brútal í hegðun. Það var Jói nú líka alltaf, blessaður.
Bendir á 6. félagsrit Tigru: http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=318&n=13 89