— GESTAPÓ —
Hexia de Trix
Heiðursgestur.
Dagbók - 10/12/06
Milliskýrsla úr njósnaferð

Hér í Hvergilandi úir og grúir allt af óvinum ríkisins. Þeir hafa reynt að týna mér í almenningssamgöngukerfinu, en ég sá við þeim. Óvinirnir eru frekar vanþróaður þjóðflokkur, sem virðist ekki alveg vera farinn að fullnýta nýjustu tölvutækni.
Hins vegar sá ég ógnvænlegan hlut í bæ sem þeir kalla Brighton (en Brighton er auðvitað ekki til nema sem hugarfóstur óvina ríkisins). Helvítis svínin hafa reynt að gera eftirmynd af forsetahöllinni - þeir reyndu að herma eftir gyllingunum og drekaskreytingunum og ég veit ekki hvað. Svo kalla þeir þetta Royal Pavilion og nota sem túristagildru. Ég þurfti að dulbúa mig sem hversdagslegan ferðamann til að komast inn og sjá með eigin augum hversu óforskammaðir óvinirnir hafa gerst með þessari eftirlíkingu. Hins vegar get ég fullvissað forsetann um að þessi eftirlíking nær engan veginn að fanga íburðinn og glæsileikann í hinni raunverulega forsetahöll.

Ég er hins vegar búin að viða að mér miklum upplýsingum um vopnabúr óvinanna, og það setur að mér ugg. Andstæðingar Baggalútíu eru mun framar í vopnaburði en við héldum. Það þarf þó ekki að vera stórt vandamál, enda búa þeir ekki yfir eins yfirgripsmikilli þekkingu á kóbalti og við, hvað þá eliptoni. (Já, meðan ég man: Ég rakst á útimarkað sem selur elipton eins og hvert annað drasl, ég þorði ekki annað en að kaupa upp lagerinn svo þessir vitleysingar fari ekki að gera tilraunir með þessa gersemi. Vonandi var í lagi að nota kort sem er beintengt við fjárhirslur ríkisins)

Hvað kakógerð varðar, þá hef ég orðið fyrir nokkrum vonbrigðum. Ég virðist lítið geta lært af kollegum mínum hér í hinum meintu útlöndum. Það þýðir auðvitað að Baggalútía hefur yfir að ráða besta kakómallara heims, sem er ekki svo slæmt! ‹Ljómar upp›

Bestu kveðjur frá Hvergilandi
ykkar Hexia

   (6 af 32)  
10/12/06 04:02

Vladimir Fuckov

Mjög athyglisvert og greinilega árangursrík njósnaferð. Þó verðum vjer að játa að vjer hrökkluðumst nokkuð langt afturábak og hrösuðum næstum því við er vjer lásum um eliptonið. Það mál þarf greinilega að rannsaka nánar [Beinir njósnagervihnöttum að tilteknu svæði í sk. 'útlöndum'].

10/12/06 05:00

Ívar Sívertsen

En Hexia... svörin við öllum spurningum mínum... ég þarf svör...

10/12/06 05:01

Tigra

Ívar minn. Það er ekki hægt að trufla mikilvægar njósnaferðir bara vegna þess að þú kannt ekki að skeina þig.

10/12/06 05:01

Ívar Sívertsen

Ætlar þú þá að aðstoða mig Tigra?

10/12/06 05:01

krossgata

Tókst þér að koma fyrir hlerunartækjum í eftirlíkingarhörmunginnni?

Hexia de Trix:
  • Fæðing hér: 9/11/04 23:04
  • Síðast á ferli: 22/2/23 12:33
  • Innlegg: 5327
Eðli:
Prakkaranorn
Fræðasvið:
Galdrar, töfrar, hrekkir, tvíræðni, bókasafns- og upplýsingafræði.
Æviágrip:
Missti stjórn á sjálfri sér þegar hún var stödd í Undirheimum fyrir nokkru og náði happapeningnum þegar Frelli lagði gildru. Er nú stoltur eigandi happapeningsins, en man ekki lengur hvað hún ætlaði að gera við hann.