Þar eð ég er ekki mjög sjóuð í Baggalútsfræðum verð ég að biðja um útskýringar, helst fram settar á þann máta að jafnvel lítil börn skilji.
Það sem vefst fyrir mér núna er: Hvað í bévuðum dáranum er "Umsögn"?
Til glöggvunar þeim er kynnu að skilja mig illa, er ég hér að meina Umsögn þá sem maður er beðinn um við skráningu Félagsrita.
Nú er ég ekki það sjálfselsk að ég vilji setja inn umsögn um minn eigin pistil, enda finnst mér í hæsta máta óeðlilegt að ritari gefi skrifum sínum sjálfur einkunn, og það jafnvel áður en skrifin fara fram. En þetta er nú samt það eina sem mér dettur í hug. Vill einhver útskýra þetta fyrir mér?
Það er einskonar úrdráttur eða formáli að ritinu. Engin einkunn eða þvílíkt. Þetta kemur skáletrað neðan við titilinn, ofan við textann.
Þetta er bara eins konar undirfyrirsögn. Kannski svipað því að hafa tvípunkt í heilli fyrirsögn, þar sem nánar er útlistað hvað aðalfyrirsögnin segir.
Nei auðvitað var þetta engin umsögn og þetta ekki heldur. Ég var bara að gabba.
Aah... þið meinið svona einsog undirtitill. Væri þá ekki nær að kalla þetta undirtitil? Hvar er ritstjórnin þegar maður þarf á henni að halda... ENTER! koddaðeins!
Ritaðu heilt félagsrit.
Lestu það svo yfir og taktu útdrátt.
Taktu svo útdráttinn og ritaðu hann upp á nýtt, með öðrum hugtökum, tilvitnunum og orðtökum. Við þetta hefur þú skapaðu umsögn.
Augljóslega er þetta mikilvægur ferill í öllum félagsrita-skrifum og fer ég fram á að þú standir klár að þessum atriðum í hvert skipti sem þú ritar heilsteypt félagsrit. (Ef ætlunin er að skapa eitthvað jafn tilgangslaust og félagsrit þetta, sem svar mitt er við, endilega ekki hafa neinar áhyggjur af "umsögn", þar sem hún er ekki nauðsynleg við slík tilefni.)
Lifðu heil.
-
Og hvað... ertu með því að draga úr sannleiksgildi þess sem ég hafði áður ritað ? Það þykir mér afar illa gert af þér. Hef ég gert eitthvað á þinn hlut ? Hví lætur þú svona ?
-
æ, nei el**u Limbri minn. Ég var bara með minni íroníu að draga það saman í stutt mál
A... þið meinið það sem kallast á ensku „abstract“. Hví heitir þetta þá ekki úrdráttur (nú eða þá formáli) í stað umsagnar?
Þú ert ekki að sjá punktinn sem ég lagði fram. Þú átt að "umsegja" útdráttinn, ef svo mætti að orði komast. Þar liggur hundurinn grafinn.
-
Mér finnst orðið "umsögn" samt vera einsog einkunn. Undirtitill er í rauninni "umseginn úrdráttur", svo mér finnst að þetta eigi að heita undirtitill. En það er nú bara mín skoðun.
Umskorinn dráttur?!? Hinsegin hálfdráttur?!? Þetta er formáli og ekkert annað!
Ertu núna semsagt farinn að efast um íslensku-kunnáttu Ritsjórnar ? Þetta er fyrir neðan allar hellur. Ef Ritstjórn nefnir þennan hluta Félagsrita, umsögn, þá er þetta umsögn.
-
Nei, þetta er engin helvítis umsögn. Orð í belg er umsögn notenda en það sem ritstjórn hefur kosið að kalla umsögn er formáli!
Umsögn- sögn um- segja um- minn skilningur er sá að í Umsögninni áttu að segja örfá orð um félagsritið þitt, formáli-útdráttur eða bara einfaldlega það sem þarf að koma fram til að fólk skilji félagsritið rétt... svona eins og ég klikkaði á um daginn...
Gaman að einhver skemmtir sér Nafni minn - sjálfri finnst mér þetta reyndar nokkuð skondið, ég verð að viðurkenna það.
Ég held að umsögnin eigi að fæla fólk frá að skrifa félagsrit. Ég lendi alltaf í stökustu vandræðum með að semja hana og ófá 'meistaraverk' hafa aldrei birst fyrir vikið.
Hvað er að undirtitli. Orðið umsögn er farið að nota nær eingöngu í merkingunni einkunn. Nemendur fá umsögn í skóla, bækur fá umsögn í Kastljósi o.s.frv. Eins og ég er nú Skabbandi maður, þá styð ég að þessu verði breytt. Ekki það að ég skrifi nokkurntíma félagsrit.
[Tekur ofan hattinn og heldur um hann báðum höndum] Vegna skorts á laumupúkaþráðum kvenpóa hef ég ákveðið að subba út þetta félaxrit. Ég biðst forláts
[Ljómar og fagnar ógurlega]
En viðeigandi!
[Pirrast svolítið yfir ásláttarvillunni aðeins ofar]
Ég átti nú von á að Dula og Regína dyttu hér inn fljótlega.
[Klórar sér í höfðinu]
Forsetinn hefur hafið formlega leit. Nú eru því Dula, Regína og Vladimir að reyna að finna hann. Það er gaman að þessu.
[Ljómar upp]
[Drekkur ananashanastél, fiðrað og friðað að þessu sinni]
Ég held ég hafi riðað..... aftur.
[Ljómar upp]
Ein enn. Takk fyrir afnotin af þræðinum. Vel til fundið hjá fjalldrottningunni að gera svona kvenlegan þráð!
Hexia, hmmm, mig minnti nú að þú værir búin að finna þráðinn. Af hverju finnst mér ég hafa verið að lesa þráð þar sem þú upplýsir að þú finnir hann ekki?
[Klórar sér í höbbðinu]
[Klórar sér líka í höbbðinu]
Ég man nú ekki eftir að hafa fundið þetta, hlýt að hafa dottið laglega á hausinn. En núna er ég allavega búin að finna ykkur... aftur...
Og Vlad ekki mættur enn?
Nei! Nornir eru ekki leiðinlegar. Strákarnir eru bara greinilega ekki nægilega tengdir sinni kvenlegu hlið og eiga erfitt með að finna svona kvenlega þræði.
Síðbúnar þakkarkveðjur krossa mín. Ég gleymi alltaf hvaða rit það er hjá mér sem er orðinn að laumupúkaþræði... Ekki nokkur frammistaða.
En skál samt!
Já, skál!!! Alltaf skyldi maður nýta tækifærin sem gefast til að skála. Skál fyrir því!
Ég er gulur! Og stundum kona. [Kíkir í buxurnar] Já, ég er kona núna. Skál!