Ég er hættur við að gera þessar sverris sveskju sögur þær eru bara rugl og tímasóun og endemis bandbrjálaður og fáránlega ófattanlegur húmor. En hinsvegar er ég á hugsi með það að gera mína eigin kaffistofu nefnda " Café Lausn" en þar verður hægt að fá lausnir á vandamálum (sjá "stutt umfjöllun") en það verða þá lausnir á vnadamálum í lífinu! einnig verður hægt að fá sér piparkökur með mjólk og á laugardagskveldum seljum vér svo bjór. En ég er hins vegar ekki viss um þetta... Hvað finnst ykkur??
Ég myndi vilja fá kaffi með piparkökunum. Jafnvel væri íhuganarefni fyrir þig að bjóða uppá jólaglögg líka, allavega í desember. Ekki það, ég drekk ekki glögg, en þekki marga glögga. Hugsaðu um þetta.
En ef það er Café, þá verður þú að bjóða upp á allskyns froccamósínó og hvað það allt heitir. Mun betra að hafa það Kaffi. Þá er það bara svartur ruddinn og ekkert múður.
-
Jah, lagið var hresst. Kannski maður syngi með og mæti eins og einu sinni... en bara ef ég fæ rudda kaffi, bliksvart og sjóðheitt.
ekki jafnódýrt og á café lausn því fyrstu 5 dagana er opnunartilboð allt er frítt! en opnunartilboð gildir til 24. okt.