tja..ég verð nú að viðurkenna sem nýbyrjandi hér að ég kunni ekki á allt og ég biðst innilegrar afsökunar á einhverju sem ég hef gert vitlaust hér og einhver hefur tíma og góðmennsku í það að hjálpa nýjum byrjanda að læra á hlutina þá þigg ég alla hjálp s
Sælt ljón.
Ég er nú bara nokkurn veginn nýkomin líka en ég mundi ráðleggja þér að skoða þig vel um, lesa þræði og fylgjast með og svo geturðu farið að láta ljós þitt skína með því að setja inn innlegg, stofna þræði og semja félagsrit. Það tekur smástund að ná þessu - að ég tali nú ekki um þann anda sem ríkir hér inni... Gangi þér vel !
en umm ég er nú búinn að læra mikið á þessum nokkru mínutum en það væri gott að vita hvernig maður fær svona stöður eins og drottnari alls svalls og eigandi sálar hvernig kaupir maður sálir?
Það tekur víst allt sinn tíma - Frelli var búinn að pirra marga mjög lengi áður en hann eignaðist sálirnar.....hmm...held ég...
En þegar maður kaupir sálu þarf maður þá einhvernveginn að skrifa það einhverstaðar svo að það birtist þegar maður sendir innlegg eða kemur það að sjálfu sér?
En það sem málið snýst helst um er að menn eiga ekki að stökkva beint í að skrifa fjöldan allan af innleggjum. Rétta aðferðin er að lesa í nokkra daga fyrst. Læra að þekkja fólk örlítið og koma sér í stemmninguna.
-
En ég á eftir að verða heimsfrægur um alla baggalútíu að sögn vitringa minna!
Fínt! Hér vantar alltaf fleiri maníska mikilmennskubrjálæðinga. Vertu hjartanlega velkominn.
Til Fnyks: ég og fjöldi persónuleika minna sinnum tveir. Annars máttu nú ekki vera með svona leiðindi - þar er bannað hér inná snýtuklút, það eiga svona vitringar eins og þú að vita. You shit for brains!
Velkomið Ljón. Ég minni á stóra stafi og vandað málfar. Skyndihrafl og óyfirlesnar færslur eru til vansa. Þú lofar þó góðu.
En. Hvernig skal ég öðlast stöður s.s. sendiherra í löndum eða jafnvel ráðherra?
Með því að sana þig sem sannur Baggalútur það tekur nú mikinn tíma en á Krumpa ekki hraðametið.
"En. Hvernig skal ég öðlast stöður s.s. sendiherra í löndum eða jafnvel ráðherra?"
Vertu nógu frekur, varðandi undirskrif geturu breytt henni í uppsetningu. Gættu að stafsetningu/málfari og segðu eitthvað af viti, ekki eitthvað glórulaust bull.
Smellir á "Uppsetning" í veftrénu til hægri.
Annars er gott að lesa sér svolítið til um sögu Baggalútíu, þ.e.a.s. lesa svona eitt og eitt innlegg úr gömlum þráðum, með því móti lærirðu á kerfið.
Já þú meinar það. En má ég breyta henni eins og ég vil? Eða þarf maður að verða skipaður í þessar stöður?
Uppsetningunni? Hún er fyrir þínar persónulegu stillingar. Blessaður, breyttu henni eins og þú vilt.