— GESTAPÓ —
Uppáklæddur Bítill
Nýgræðingur með  ritstíflu.
Dagbók - 31/10/03
Ég féll - Varið ykkur!

Ég féll - Varið ykkur á holunum!

Ég féll ofan í holu með tölvu mína í hönd.
Furðulegt það ég sit hér stórslasaður og get varla skrifað á blessað lyklaborðið, en tölvan er í fullu fjöri.

Holan hefur væntanlega verið grafin af einhverjum börnum sem hafa ekkert við tímann að gera í þessu blessaða verkfalli kennara.
Greinilegt er að þetta hefur verið hópur þar sem að holan er mjög djúp og var hún vel falin.

Ég bið ykkur öll um að vara ykkur þegar þið eruð úti á gangi þar sem ég býst fastlega við því að þessi holufaraldur hafi dreifst um allt land.

Geta börnin virkilega ekki fundið sér eitthvað gáfulegra að gera heldur en að grafa holur.

Ég sit hér og hef blessunarlega náð að tengjast inn á þráðlaust net sem einhver íbúi hér í nágrenni við mig er með.

Brókarsóttin er alveg að fara með mig og ekki væri verra ef að föngulegur kvenmaður myndi sjá sér fært um að detta ofan í holuna sem fyrst.

Kærar kveðjur frá holunni,
Uppáklæddur Bítill

   (1 af 1)  
31/10/03 17:02

krumpa

Sæll og velkominn ! Það væri nú ráð að vera ekki að þvælast úti með tölvuna - nóg er nú netsýkin í fólki samt. Vil svo benda á af einskærum hroka að það er einungis kvenþjóðin sem þjáðst getur af brókarsótt (ekki ég samt) svo að ég er ekki alveg með á hreinu hvað nákvæmlega það er sem hrjáir þig...

31/10/03 17:02

Uppáklæddur Bítill

Fjandinn.
Ég þoli ekki þetta óréttlæti.
Afhverju fá karlmenn aldrei að þjást af fallegu og skemmtilegu kvillunum.

Nú er ég hneykslaður!

31/10/03 17:02

Haraldur Austmann

Við getum fengið athyglisbrest með þroska- og hegðunarröskun. Það er voða gaman.

31/10/03 17:02

Uppáklæddur Bítill

Já ég á því miður eftir að upplifa það.
En ég tek orð þitt trúanlegt.

31/10/03 18:00

Illi Apinn

Við getum líka fengið krabbamein í blöðruhálskirtli.
Jibbí

31/10/03 18:01

Coca Cola

Meatloaf maður!

Uppáklæddur Bítill:
  • Fæðing hér: 17/10/04 20:04
  • Síðast á ferli: 3/11/04 19:25
  • Innlegg: 0