Annar hluti undirbúnings míns að næsta Aukasjálfamafíuleik er hafinn.
Með þessari opinberu tilkynningu bið ég þá Gestapóa sem eiga til aukasjálf ætlað til mafíuleikja, en sjá ekki fram á að nota aukasjálfið í öðrum tilgangi, að íhuga þann möguleika að "leggja inn" aukasjálfið á skiptimarkað. Á sama stað yrði hægt að nálgast nýtt aukasjálf fyrir næsta aukasjálfamafíuleik. Ath. Ég ætla ekki að búa til neitt allsherjar-aukaegóa-markaðstorg heldur er þetta einvörðungu hugsað sem úrræði fyrir Aukasjálfamafíuleikinn svo það rigni ekki inn myndabeiðnum til ritstjórnar og hálfur leikurinn sé fullur af "einsleitum apaköttum". Glottir eins og fífl
Nauðsynlegar upplýsingar til aukasjálfaskila er hægt að senda til ofanritaðs með einkapósti.
Aukasjálfamafíuleikjamálaráðuneytinu þann annan í maí
B. Ewing [sign]
Hættu þessu mafíurugli og farðu að undirbúa sumarkomuna á Veðurfarsstofnun Hins Baggalútíska heimsveldis. Veðurvélin verður færð út undir bert loft á morgun. Og svo megið þið aukasjálfaeigendur eyða öllum ykkar aukasjálfum. Það myndi einfalda tilveruna verulega.
Hvernig væri að slaka aðeins á í þessari Mafíu og sinna
LITASPÁNNI !!!
Búbbinn þinn !!!
Ekki vera sár Strandamaður.
Svona gengur þessi blessaði leikur...
Annars má vel vera að Trefill sé til reiðu ef rétt tilboð kemur.
Þetta er prýðileg hugmynd - það er ekkert gaman þegar allt fyllist af nýjum alteregóum vegna aukasjálfaleikja. Þetta ætti að draga mjög úr slíku auk þess sem það er ruglandi ef allir líta út eins og apakettir.
Ég vil byrja á að þakka öllum þeim sem hafa nú þegar brugðist við og sent inn aukasjálfin sín.
Rétt er að taka fram að ég verð að loka fyrir aðgang eigenda á meðan aukasjálfið er í láni. Ef einhver sér sér um hönd áður en leikur hefst má viðkomandi biðja mig um endurnýjaðan aðgang að sjálfinu sínu. Mun ég opna það aftur eins fljótt og mögulegt er (þó ekki ef leikur verður í gangi). Á sama tíma verður viðkomandi sjálf ekki lengur gjaldgengt í leikinn nema að undangenginni "endurinnlögn".
Tilboð vera ekki gerð í nein aukasjálf. Aukasjálfum verður úthlutað til þeirra sem vilja Nýtt Útlit eftir kerfisbundnu slembilukkufyrirkomulagi. Verði skortur á aukasjálfum verður hefðbundin leið valin til að spilari geti orðið gjaldgengur.
Önnur ástæða þessarar beiðni er að á hliðarspjalli fyrsta Aukasjálfaleiksins spunnust ótrúlega innihaldsríkar og merkar umræður um hver ætti hvaða sjálf og er ætlunin að slíkt geti endurtekið sig í næsta aukasjálfaleik.
Þegar leikurinn nálgast mun ég síðan ítreka þessa beiðni en það er gott að hafa "á lager" það sem komið er, því það er aldrei að vita nema byrja þurfi leikinn með skömmum fyrirvara...