Fyrst Harpa nokkur ætlar að fara að syngja sitt lag enn eitt árið þá er ekki úr vegi að rifja upp hver þessi Harpa er og kynnast systrum hennar og bræðrum aðeins nánar.<br /> <br /> Nýverið kom í ljós ljóð handskrifað af afa mínum heitnum sem ég tel viðeigandi að birta í fyrsta sinn opinberlega á þessu þekkingarsetri mannsins og næringarstöð mannsandans.<br /> <br /> Verkið er í bundnu formi og tel ég ofangreindan vera höfund þess unz sannanir um annað hafa borist.
Mörsugur á miðjum vetri
markar spor spor í gljúfrasetri
Þorri hristir fannafeldinn
fnæsir í bæ og drepur eldinn
Góa á til grimmd og blíðu
gengur í éljapisi síðu
Einmánuður andar nepju
öslar snjó og hendir krepju
Harpa vekur von og kæti
vingjarnleg og kvik á fæti
Skerpla lífsins vöggu vaggar
vitjar hrelldra sorgir þaggar
Sólmánuður ljóssins ljóma
leggur til og fuglahljóma
Heyannir og hundadagar
hlynna að gæðum fróns og lagar
Tvímánuður allann arðinn
ýtum færir heim í garðinn
Gormánuður grellið tetur
gengur í hlað og leiðir vetur
Haustmánuður hreggi grætur
hljóða daga langar nætur
Ýlir ber en byrgist sólin
brosa stjörnur koma jólin
Í fyrsta sinn???? Þetta er úr úr stafrófskveri eftir Hallgrím Jónsson (1875-1961) kennara og skólastjóra en ekki eftir afa þinn! Afi þinn var rugludallur!
Skiptir litlu hvaðan gott kemur. Reyndar gott að fá höfundinn á hreint til að B.Ewing verði ekki vændur um Hannesun. Er það 100% að þetta sé eftir H.J.
Góð þula og skemmtilegt að fá svona greinagóða úttekt á röðun mánaðanna.
Glæsilegt kvæði, sem á svo sannarlega erindi í félagsrit.
Hvað varðar höfundarspursmál - Ewing orðaði þetta svo:
" . . . og t e l ég ofangreindan vera höfund þess unz sannanir um annað hafa borist."
Dalai Lama bendir réttilega (en fremur ókurteislega) á að kvæðið hefur sannarlega birzt áður opinberlega. Hann hefur þó ekki fyrir því að leggja fram gögn máli sínu til stuðnings, & geri ég það því hérmeð, óumbeðinn:
http://www.ismennt.is/not/thodda/dagatal2004.ppt#286,1,Slide%201
Það er hinsvegar enganveginn sannað að afi pistilritara hafi verið rugludallur. Aukinheldur vitum ekki nema Ewing-afinn & téður Hallgrímur skólamaður gætu hafa verið einn & sami maðurinn...
Og aukinheldur þá kemur fram hjá Ewing að þetta er að birtast í fyrsta skipti opinberlega [á þessu þekkingarsetri mannsins og næringarstöð mannsandans] sem myndi þá vera Baggalútur?
Sem er alveg rétt, ekki hef ég séð þetta á lútinum áður.
Takk fyrir upplýsingarnar. Kvæðið var einungis af handskrifuðu blaði aukinheldur þess að afi heitinn var eigi þekktur fyrir kveðskap. Engar upplýsingar um hvenær eða hver orti var að finna á téðu blaði en nú hefur það verið leiðrétt (hversu ósmekklega sem það var gert) Dalai Lama lærir vonandi af reynslunni með sín skrif og að lesa til hlýtar félagsrit áður en hlaupið er yfir lyklaborðið með upphrópunarmerkjum og svívirðingm.