Nýtt frumvarp um vændi á Alþingi ætlar að færa sökina í vændismálum yfir á kaupandann en firra vændiskonuna allri ábyrgð vegna þess að hún sé fórnarlamb.
www.mbl.is segir um dóm sem féll yfir vændiskonu í vikunni:
"Þjónustuna, sem konan auglýsti á vefsíðu sinni sem erótískt nudd, samfarir og munngælur, veitti hún gegn greiðslu og námu brúttótekjur hennar af starfseminni að minnsta kosti 9 milljónum króna eða um milljón á mánuði."
Ég væri alveg til í að hafa tekjur bankastjóra og vera samt álitinn fórnarlamb.
Leitaðu að Þormóði Þvengils í símaskránni, hann er titlaður sútari þar en er víst alveg helvíti flinkur með naglaklippurnar að mér er sagt. Besti lýtalæknir í þremur sýslum!