Hrossabrestur Fjármálaráðherra sinnir störfum 10 daga á ári! - eða er hann líka horfin?
Fréttamaður BT hefur undanfarnar vikur kannað vinnutíma þingmanna. Her ber hæst að Hrossabrestur fjármálaráðherra virðist aðeins sinna störfum 10 daga á ári, þ.e. 10 til 20. desember hvers árs. Ekki hefur fengist upplýst hvenær fjárlagafrumvörp Baggalútiu eru kynnt, en víst þykir að þessu starfi hefur af hálfu Hrossabrests ekki verið sinnt sem skyldi.
-
Hvernig datt honum þetta í hug?
Hrossabrestur var mjög virkur á þræðinum "Hvað dettur ykkur í hug?" og var það manna mál að það væru í raun engin takmörk fyrir því hvað manninum gæti dottið í hug.
11. desember byrjaði Hrossabrest að "detta í hug". Þenna dag datt honum 20 sinnum í hug, sem þykir gífurlegt magn hugdetta á einum degi. Dagin eftir fék hann 8 hugdettur, þarnæst 12.
14. desember jafnaði hann met sitt med 20 hugdettum (þess ber þó að geta að hér vakti hann framyfir miðnætti, sem olli því að aðeins 5 hugdettur litu dagsins ljós daginn eftir). Als datt Hrossabresti sjötíu og þrisvar sinum í hug á 10 dögum, sem gefur 7,3 hugdettur á dag að meðaltali.
-
Er fjármálaráðherran horfin líkt og Mús-Lí?
Margt bendir til þess að Hrossabrestur hafi ekki verið ánægður í starfi. Hrossabrestur réðst til atlögu gengn "Baggalútsmönnum" [Ritstjórninni] daginn sem hann dróg sig í hlé með orðunum:
-
Afhverju svarið þið Baggalútsmenn ekki öllum fyrirspurnum??! Þær liggja hér óhreyfðar dögum saman margar hverjar og er ekki svarað?!http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1394&highlight= [tengill] Sjá hér [/tengill]
-
6 mínútum seinna datt honum "Leikfélag Sólheima" i hug á þræðinum "Hvað dettur ykkur í hug II?"
Síðan hefur ekki spurst til Hrossabrests. Þess ber að geta að 6 dögum eftir atlögu Hrossabrest að ríkistjórninni svaraði http://www.baggalutur.is/profile.php?mode=viewprofile&u=3 [tengill] Enter [/tengill] með orðunum:
-
Hvaða andskotans bull er þetta?!
-
Kanski sá Hrossabrestur aldrei að þetta var bull í honum, kanski var hann búin að gefast upp eftir 5 daga, kanski fylltist hann undirgefni og lét sig hverfa eftir þessi harðorðu ummæli Enter.
Mörgum spurningum er enn ósvarað og má segja að rannsókn málsins sé enn á byrjunarstigi. Eitt er víst að beðið verður með spenningi eftir Hrossabresti 10.desember 2004, þ.e.a.s. ef kenning blaðamanns stenst.
-
"Fjármálaráðherra sinnir störfum 10 daga á ári!"
BT fylgist eigi nógu vel með. Það var skipt um fjármálaráðherra í gær.
Legg ég til að boðað sé til fréttmannafundar þegar svo mikilvæg embætti sem fjámálaráðherra skipta sköpum. [Fyllist vonleysi yfir viðtökum fyrstu tölublaða BT - en stappar í sig stálinu - Crick vill djöst hef tú lörn it þe hard vei]
Fréttamannafundar? Er ekki nóg að ríkisstjórnin viti af þessu? Hvernig eigim við annars að viðhalda fullkominni spillingu ef almúginn veit hvað við erum að aðhafast?