Ég fór í bæinn um helgina. Til Reykjavíkur. Margt var þar við það sama. En margt var það ekki, svosem ég. Ég hitti þar gamla og nýja félaga alla misjafnlega af Guði gerða. En allir höfðu þeir það í sér að eiga möguleikann á því að verða að betri mönnum. Ég missti einnig einn falskan vin sem aðeins hapði gefið mér fölsk loforð. En þar sem að ég sá í honum margan góðan mannkostinn vildi ég bíða og sjá hvort ekki úr honum myndi rætast. En frúin hans og ég fengum okkur guðaveigar saman og það fór illa ofan í hans slæmu samvisku og sleit hann þá „vinskapnum“. Og þá er ég endanlega laus við þann ógæfu mann sem að svíkur og fer með vini sína eins og þeir séu eitthvað sem hann þarf að nota til að vera dusilmenni. Einnig sá ég að borgin er ekki eftirsóknarverð. Svo á sunnudagsmorguninn vaknaði ég kl 07:00 og kláraði rauðvínið sem að ég sofnaði útfrá, drekk helst ekki sterkt vín. Hugsaði mig um nokkra stund og ákvað að fara í kirkju. Það gerði ég og þar sem að ég hefi fundið mína köllun í lífinu sótti ég hana í bastillskuna kristkirkju. Það var guðdómlegstund og tónlistinn og kórinn með þeim betri sem að ég hefi hlítt á. Organistinn fær og mætti segja mér að þetta hafi verið á heimsmælikvarða að gæðum. Ég ákvað svo að ganga til altaris og innbyrða huglægt líkamakrist og það var ekki það sem ég fékk er hin góði prestur kemur að mér Sr Jörgen Jamin. Heldur var ég eini maðurinn sem að hann lagði hendur yfir höfuð og blessaði í guðsnafni. Mér leið sem dýrlingi á eftir og varð upp með mér og stoltur og lifi enn sem blessaður maður og reyni að fara vel með þessa gjöf. Hvet ég alla þá er vilja leita eftir því að rækta það góða innra með sjálfum sér að sækja slíka þjónustu sem ég gjörði og þá er það hægt að gera kl 10:30 á sunnudagsmorgnum. En messu formið er á annan hátt og annarstaðar og þarf maður að sækja viðtöl til prests til að læra þá réttu siði og til þess að aga sig svo að maður geti verið öðrum góð fyrirmynd. Einnig er faðirvorið á annan máta og það slitið í stundur á tveimur stöðum svo hægt sé að hugleiða betur hvað það er sem maður er að þilja upp. Eina breiting á framsögn þess er að sagt er: komi þitt ríki. Í stað þess að böglast með: Til komi þitt ríki sem er órökhugsuð framsettning. Að mínu áliti. Eftir að hafa fengið að vita betur.