— GESTAPÓ —
Omegaone
Nýgræðingur.
Sálmur - 7/12/03
No 1

Stuldur.

Þegar Davíð talaði, sló ótta á menn. Hann var höfðingi í Íslands. En hann varð sekur fyrir mammons dýrkun og fór frá völdum með skömm.
Og nú halda þeir áfram að syndga, þeir hafa gjört sér steypt líkneski úr silfri sínu, goðalíkneski eftir hugviti sínu, verk hagleiksmanna er það allt saman. Og slíkt ávarpa þeir. Fórnandi menn kyssa kálfa.
Fyrir því skulu þeir verða eins og ský að morgni dags og sem dögg, er snemma hverfur, eins og sáðir, sem þyrlast burt af láfanum, og sem reykur út um ljóra.
En ég, Drottinn, er Guð þinn frá því á Egyptalandi. Annan guð en mig þekkir þú ekki og enginn frelsari er til nema ég.
Það var ég, sem hélt þér til haga í eyðimörkinni, í landi þurrkanna.
En því meira haglendi sem þér fenguð, því saddari varst þú. En er þér voruð orðnir saddir, metnaðist hjarta þitt. Þess vegna gleymdu þér mér. Líkt og þið Íslendingar hafið gert eftir að þið skriðuð útúr torfkofunum.
Þrátt fyrir það er ég eins og ljón, ligg í leyni við veginn eins og pardusdýr,
ræðst á ykkur eins og óð birna, sem rænd er húnum sínum, sundurríf brjóst ykkar. Þar skulu ung ljón eta ykkur og villidýrin slíta sundur.
Það verður þér að tjóni, Ísland, ef að þú ert á móti mér, hjálpara þínum.
Hvar er nú konungur þinn, að hann frelsi þig, og allir höfðingjar þínir, að þeir rétti hluta þinn? þeir er þú sagðir um: Gef mér konung og höfðingja góða og mikla! En það er ég sem gef þér konung í reiði minni og tek hann aftur í bræði minni.
Misgjörð Davíðs er saman bundin, synd hans vel geymd.
Kvalir jóðsjúkrar konu koma yfir hann, en hann er óvitur sonur. Þótt stundin sé komin, kemur hann ekki fram í burðarliðinn.
Ætti ég að frelsa þá frá Heljar valdi, leysa þá frá dauða? Hvar eru drepsóttir þínar, dauði? Hvar er sýki þín, Hel? Augu mín þekkja enga meðaumkun.
Því þótt hann beri ávöxt meðal bræðranna, þá kemur þó austanvindurinn, stormur Drottins, sem rís upp í norðri, bölvuð norðan áttin, úr öllum áttum skal hann vera að norðan, svo að brunnar hans þorna og lindir hans þrjóta. Hann (stormurinn) mun ræna fjársjóð hans öllum dýrmætum gersemum.

   (40 af 43)  
Omegaone:
  • Fæðing hér: 12/7/04 15:52
  • Síðast á ferli: 13/5/06 19:33
  • Innlegg: 0
Eðli:
Maður sem hefur séð sjálfan sig í spegli.Og hefur verið sagður Engill Drottins. Er einræðis herra í eðli sínu og heldur mikið aftur af sér og er með varasamar geð sveiflur. Hann er Landsmaður ekki borgari, Notabene það er Æðra. Og hann stefnir á nobellinn í stjórnmála heimspeki. Og hann er með Dr gráðu frá, Guði hinum æðra allra, í lífsspeki og heimspeki. Og hann eins og áður hefur á minnst stefnir á Nobelsverlaun og það í mörgum flokkum.