— GESTAPÓ —
Vímus
Heiðursgestur.
Dagbók - 8/12/03
Omegaone

Ég fagna komu Omegaone á þennan vef.
Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að ekki finndust ruglaðri menn en ég á þessari plánetu. Nú er það alveg kristalklárt að svo er ekki. Getur verið að Omegaone taki ekki inn lyfin sín, samkvæmt læknisráði, eða hreinlega sleppi því að taka þau. Ég sé að rólegheitarmenn s. b. Vamban og Skabbi eru á barmi taugaáfalls vegna óskiljanlegra skrifa Omegaone.

Omegaone! Farðu eftir ráðum mínum og þetta mun lagast.

Tryptisol og trilafon
tofranil og ensidon
ef þú étur virðist von
vaknaðu Omegaone

   (37 af 38)  
Vímus:
  • Fæðing hér: 12/6/04 23:03
  • Síðast á ferli: 16/11/12 15:46
  • Innlegg: 7406
Eðli:
Óuppalinn. Slæmu uppeldi er því ekki um að kenna. Er sagður hafa fundist í eplakassa á öskuhaugum bæjarins. Góðhjartað fólk úr Vesturbænum tók mig að sér en skilaði mér fljótlega aftur á sömu slóðir. Þar nærðist ég á sorpi og rottukjöti uns haugarnir voru aflagðir. Mun þá hafa leitað uppi allan mannlegan sora sem fyrirfannst og haldið mig þar allar götur síðan. Finn mig sérlega vel á þessum vef.
Fræðasvið:
Lyfjagerð og smökkun
Æviágrip:
Því miður er öll mín ævi hulin óútskýranlegri þokuAð vísu er hún vel skráð hjá hinu opinbera. Sjá helstu geðdeildir, fangelsi og aðrar áþekkar stofnanir