Hvernig maður er suma daga með algjöra ritstíflu, en aðra getur maður bunað frá sér gáfulegum og skemmtilegum innleggjum.
Í gærkvöldi var ég algjörlega hamslaus, dældi út frá mér innleggjum og endað með því að þurfti að færa mig upp á sjúkrahús með ónýta putta (það gerðist í rauninni ekki, vildi bara krydda aðeins frásögnina). Aftur á móti er ég haldinn skelfilegri ritstýflu, sama hvað ég kíki á marga þræði dettur mér ekkert sniðugt í hug til að segja.
Hvernig er þetta, er þetta einhver "föstudagsmanía" sem grípur mann, eða er bara svona rosalegur dagamunur á manni? Er ég bara eitthvað undarlegur á einn eða annan hátt eða hafið þið líka lennt í þessu?
Ég spyr.
Jáhá - þetta virðist reyndar hrjá flesta hér í kvöld - er að reyna að finna afsökun fyrir að hanga hérna í stað þess að gera það sem ég þyrfti að gera - en það segir bara enginn neitt ! Slappt...
-Já, ég þekki þetta, lagast ef maður fær sé 6 hrá egg, blandar saman við þau tabaskó sósu og hálfri vodka. -Hristir þetta vel saman. Blandar þetta síðan 50 - 50 með ginger ale.
-Drekkist pungvolgt með 3 - 4 klökum í mjólkurglasi.