— GESTAPÓ —
Ég sjálfur
Fastagestur.
Gagnrýni - 31/10/03
Pinball

Þvílíkur leikur, hrein og tær snilld.

Langt síðan ég hef geta drepið tíman á svona áhrifaríkan hátt. Þessi leikur er klárlega með þeim bestu sem gerðir hafa verið, svo sannarlega toppleikur sem er í sama hópi og Pacman og aðrað eins snilldir. Tölvuleikjahönnuðum hefur farið mikið aftur í hugmyndaflugi síðan þessir leikir voru gerðir.
Þetta er einfaldur leikur sem hver sem er ætti að geta lært á og auðvelt að öðlast færni í honum.
Ég mæli eindregið með leik þessum ef ætlunin er að láta dagana líða.

   (29 af 33)  
31/10/03 04:01

Jóakim Aðalönd

Ómerkilegri leik er varla hægt að hugsa sér.

31/10/03 04:01

Ég sjálfur

Vertu ekki svona svartsýnn.

31/10/03 04:01

hundinginn

Þér eruð heiðurs maður að benda á þetta. Ég er þér fullkomlega sammála!

31/10/03 04:01

Limbri

Átt þú hér við Microsoft Pinball ?

31/10/03 04:01

hundinginn

Bíb... bíb... bíb... bíb bíb. Hreina og tær snilld og eins og Ég sjálfur segir eru það helber afturför að gera tölvuleikina svona flókna sem nú tíðkast. Honum tekst hér að láta vel á það skína, hvað lífið er í raun og veru fallegt.

31/10/03 04:01

Skabbi skrumari

Yndislegur leikur, ég er hjartanlega sammála Þér sjálfum...

31/10/03 04:02

Ég sjálfur

Hér á ég við Microsoft Pinball. Þakka fyrir mig.

Ég sjálfur:
  • Fæðing hér: 27/4/04 09:15
  • Síðast á ferli: 30/4/07 23:09
  • Innlegg: 125
Eðli:
Mikilmenni á heimsmælikvarða
Fræðasvið:
Allt ónauðsynlegt og heimskulegt.
Æviágrip:
Fæddist í 38 bröggum, á ennþá eftir á deyja hetjulegum dauðdaga.