Að gefnu tilefni:
Það er alger misskilningur að hér leyfist mönnum að skrifa hvað sem er um hvaðeina. Vilji menn viðra andfélagslegar, subbulegar, virðingarsnauðar og fordómafullar skoðanir sínar - þá er þeim vinsamlegast bent á að gera það annarsstaðar, t.d. uppi á hálendinu eða, sem væri betra, neðansjávar.
Þið hin eruð náttúrulega æði - sem endranær.
Ég les allt á svo jákvæðum nótum að ég er að springa. Annaðhvort ég svona vitlaus eða svona ofboðsleg Pollýanna að ég ætti að íhuga að flétta á mig tíkó!
Ég tek eftir því að hinn mikli töffari Abu Hamza hefur horfið úr félagsritaröðinni. Farið hefur fé betra býst ég við.
Ættli hann hafi ekki bara borðað eitraða hamsa..... En ég er nottlega alveg einstaklega mikið æði.
Þetta er nú með innihaldsrýrara félagsriti sem skrifað hefur verið... Taktu þig nú taki Númi og reyndu að vera svolítið jákvæður og skrifaðu um eitthvað af viti.
Þinn einlægasti aðdáandi: Finngálkn.
P.s. Þó svo að menn séu góðir tónlistarmenn er ekki þar með sagt að þeir geti skrifað... Beint í punginn... Hvað þá verið skemmtilegir!
Lengi lifi ritstjórn og frú Vigdís!
Húrra! Húrra! Húrra! Húrra!
[Hýðir þá sem ekki taka þátt í taumlausri múgsefjuninni]
Nei, ég er búinn að fylgjast með þér á mörgum laumupúkasvæðum, án þess þó að leggja orð í belg.