Gunnilla Strömgren, nuddari

Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum flugumferðarstjóra við ríkið og er svo komið að flestir þeirra hyggja á uppsagnir verði ekki komið til móts við kröfur þeirra. Helst er deilt um erótískt nudd, en sem kunnugt er sömdu sjúkraliðar um slík hlunnindi á dögunum. "Við viljum náttúrulega fá það sem sambærilegar stéttir hafa verið að fá og erótískt nudd er vissulega mikil bót fyrir félagsmenn okkar, sem þjást mjög af kynstíflu vegna gífurlegs álags í starfi", sagði Eggert Einarsson, talsmaður félags flugumferðarstjóra. Skv. heimildum Baggalúts hefur erótíski nuddarinn Gunnilla Strömgren, frá Noregi bæst í hóp þeirra sem berjast fyrir bættum kjörum flugumferðarstjóra, en hún er afar fær á sínu sviði og geysivinsæl hér á landi.

Styttan Inghvar

Enn bólar ekkert á Ingvari Þórðarsyni, eins af eigendum Kaffibarsins, en ekkert hefur sést til hans síðan veitingahúsinu var lokað á dögunum vegna vanskila.

"Ég og aðrir meðeigendur Ingvars höfum leitað út um allt, meira að segja á Múlakaffi, en hvergi finnum við hann," snökti Baltasar Kormákur brennuvargur.

Til að aðstoða við leitina hafa aðstandendur Ingvars brugðið á það ráð að láta útbúa leirmynd af honum og hefur styttan hlotið nafnið Inghvar. "Pabbi gerði styttuna, hann er ótrúlegur listamaður og hefur svo mikla næmni. Annars gengur bara allt vel með Hafið," sagði Baltasar að lokum.

Annar meðeigandi Ingvars, Damon Albarn, hafði þetta um málið að segja: "Iceland is my refuge from the strains of being a superstar. I love you all!"

Eitt barnanna á Rauðuborg, þar sem Magnea starfar

Komið hefur í ljós að Emil Antonsson, bakari og eldheitur áhangandi knattspyrnuliðsins Liverpool var heilaþveginn af fyrrum leikskólakennara sínum. Við húsleit hjá Magneu Frostadóttur, fóstru, fundust m.a. Liverpool litabækur, dúkkur og bleyjur merktar liðinu, auk þess sem kassi af búningum í barnastærðum fannst.

"Ég vissi þetta alltaf, þetta var ákaflega ónáttúrulegur áhugi hjá stráknum," sagði Anton Rafnsson, faðir Emils og formaður Arsenal-klúbbsins á Íslandi. "...við móðir hans höfum sent strákinn í meðferð við þessu og höfum að sjálfsögðu kært kellingarbeygluna - mig hryllir við að hugsa um þann skaða sem hún hefur gert á heilbrigðu íslensku þjóðfélagi.

Nýji "Zebrahesturinn" í Laugardalnum

Grunur leikur á að nýjasti íbúi Húsdýragarðsins í Laugardal sé falsaður. Gripurinn er zebrahestur sem borgarfulltrúar festu kaup á í utanlandsferð síðastliðið sumar. Glöggir menn hafa þó bent á að hesturinn minni töluvert á nautgrip af Brahman kyni. Aðspurður sagði Helgi Hjörvar borgarfulltrúi, sem hafði milligöngu um kaupin "..ég sé nú ekkert óeðlilegt við hann Dengsa...", en það nafn hlaut dýrið til heiðurs æskuvini Helga.

Furðu lostnir eyjaskeggjar virða fyrir sér kartöfluna

Tónlistarmanninum Árna Johnsen brá heldur en ekki í brún þegar hann lagði af stað til vinnu sinnar í söluturninum Lundanum í morgun.

Flennistórri kartöflu hafði verið komið fyrir í innkeyrslunni hjá honum og við hlið hennar skammarbréf frá jólasveininum Stekkjastaur. "...ég er búinn að fá nóg," sagði Árni hágrátandi í símaviðtali við Baggalút "...stelpurnar í sjoppunni tala ekki við mig, gælupysjan mín lítur ekki við mér og nú hefur jólasveinninn snúið við mér baki!!! - ég þoli bara ekki meira."

Árni hyggst ekki grípa til sérstakra varúðarráðstafan gegn þeim jólasveinum sem koma á næstu dögum, en hefur þó gítarinn við höndina ef í hart fer.

HR virðist vanta lása á dyrnar

Nemi í sagnfræðideild Háskólans í Reykjavík komst að því í síðustu viku að skrifstofa rektors var opin en í henni var talsvert magn af ónýttum prófgráðum. Meðal annars var þar að finna M.S. gráðu í óvirkri fjarskömmtun og doktorsgráðu í tvíhliða ofreiknun. Nemandinn, Pálmar Valgreinsson, lét rektor vita af þessu samstundis.

Guðfinna Bjarnadóttir rektor ber lof á nemandann og segir hann hafa brugðist hárrétt við. "Ég á eftir að fara yfir gráðurnar, en mér sýnist þær enn allar vera á sínum stað," sagði hún í samtali við Baggalút.

"Ég lét náttúrulega strax vita af þessu, en tók að sjálfsögðu ekki neina gráðu sjálfur," sagði Pálmar, en nýlega varð hann óvænt doktor í slembinni nærtegrun.

Þórarinn undirritar trúnaðarsamning við Dominos í dag

Þórarinn V. Þórarinsson mun ekki koma til starfa á ný sem forstjóri Landssíma Íslands hf. Hann hefur tekið tilboði Dominos um starf sem pítsusendill og mun hefja störf þegar í stað. "...það er fyrst og fremst frelsið sem heillar mig, ég er orðinn hundleiður á að húka á fundum alla daga í jakkafötum og með bindi," sagði Þórarinn glaðbeittur í samtali við Baggalút. Þórarinn segir nýja starfið á vissan hátt áherslubreytingu hjá sér, en vill þó meina að ábyrgðin sé svipuð: "...fólk þarf að geta treyst sendlinum fullkomnlega - rétt eins og það treystir á að hafa gott símasamband. Ég mun reyna að veita landsmönnum heiðarlega og góða þjónustu - og hver veit nema ég verði starfsmaður mánaðarins einhvern daginn?" - Já, hver veit?

Kasparov drottningu undir

Friðbert Engilbertsson, áhugamaður í skák, náði þeim undraverða árangri að vinna drottningu af sjálfum Kasparov í fjöltefli sem fram fór í Covent Garden í miðbæ London í gærkvöldi. Friðbert hefur um árabil verið áhugamaður um skák og hefur einu sinni tekið þátt í Skákþingi Patreksfjarðar. Friðbert tapaði engu að síður skákinni tveimur leikjum síðar. “Ég er náttúrulega svekktur að hafa ekki unnið, en ekki munaði nú miklu”, sagði Friðbert eftir skákina. “Þetta hvetur mann vissulega til að halda áfram og aldrei að vita nema maður reyni við atvinnumennskuna”. Glæsilegur árangur hjá þessum efnilega íþróttamanni.

Bóas mun gerbylta íslenskum samgöngum

Bóas Finnssson, ökumaður, var í gær ráðinn aðstoðarmaður samgönguráðherra. Er ráðningin liður í niðurskurðaráætlunum ríkisstjórnarinnar. "...ætlunin er að ég taki út þjóðvegi landsins og meti hvaða vegir það eru í raun sem þarf að halda við að einhverju ráði," sagði Bóas í viðtali við Baggalút. "...sannleikurinn er sá að það má komast allan fjandan ef maður er á rétta bílnum og á almennilegum dekkjum, án þess að það þurfi að vera að skafa og malbika og holufylla og hvað þetta heitir nú allt," sagði Bóas ennfremur og hvarf aftur undir nýjan sérupphækkaðan bíl ráðherra.

Nýtt lógó er þegar tilbúið

Unnið er að gerð neðanjarðarlestar um Kópavog. Er alls um 3 leiðir að að ræða að sögn Gunnars J. Birgissonar bæjarfulltrúa. Útboð á verkinu fór fram í kyrrþey og ákvað bæjarstjórn að lokum að taka tilboði Gunnars Birgissonar verktaka. Lánasjóður Íslenskra Námsmanna mun styrkja verkefnið allverulega og segir Gunnar Birgisson, fulltrúi LÍN það mikinn heiður fyrir sjóðinn að fá að taka þátt í jafn spennandi verki. Einnig er unnið að því að fá Ríkissjóð til að taka þátt í kostnaði. Varaformaður samgöngunefndar, Gunnar Birgisson, telur eðlilegt að ríkið eigi einhvern hlut að máli, enda munu lestirnar gagnast öllum þeim sem leið eiga um hið glæsilega bæjarfélag, Kópavog.

        1, 2, 3 ... 533, 534, 535 ... 549, 550, 551  
Skrípó
Lesbók
Enter
 
Þjóðbók
Smælki

Nýjung á Íslandi

Tek að mér að svíkja aleiguna út úr grunlausu fólki. Áratuga reynsla!
Áhugasamir sendi svör sín til afgreiðslu Baggalúts, merkt ÓBÓ-3112.

Atvinna óskast

Miðaldra maður óskar eftir atvinnu við afgreiðslustörf, ljónatamningar eða innheimtu. A.v.á.

Fjölpóstur!

Óska eftir að kaupa allan fjölpóst merktan eða með myndum af Kjartani Magnússyni. A.v.á.

Dætur

tvær dætur mínar á sextugsaldri fást gefins. Einnig á sama stað ættleiddur ónytjungur á fimmtugsaldri. A.v.á.

Skápahommar

Erótísku vasaljósin eru komin aftur í öllum stærðum. A.v.á.

Leðurblökumenn

Fjölmennum í hópferð á kvikmyndina skemmtilegu, og raunsæju, um Rökkurriddarann. - Félagið

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA