
Nýtt minnismerki um Halldór Laxness var afhjúpað á Austurvelli í gær, en þar stóð áður stytta af Jóni Sigurðssyni, sem nokkuð var komin til ára sinna. Hermann Gunnarsson afhjúpaði verkið, sem er afar erótískt, og sagðist af því tilefni vonast til þess að verkið yrði þeim innblástur sem eiga leið um Austurvöll.

Lausn hefur fundist á húsnæðisvanda kvennaathvarfsins. Í borgarráði var í dag ákveðið að leysa úr vandanum með því að sameina starfsemina Kattholti, sem hýsir nú óskila- og flækingsketti. "...þetta var nú það minnsta sem við gátum gert," sagði borgarstjóri hróðug. "...þarna er líka allt til alls, frítt fæði og húsnæði sag á gólfinu og sæmilega hlýtt - svo er fullt af sætum kisum þarna líka.
Talsmaður kvennaathvarfsins var í mikilli geðshræringu þegar Baggalútur hafði samband, og ekki er hafandi eftir það sem hún hafði um málið að segja.
Atli Mikson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu hefur tilkynnt að hann muni framvegis ekki nota leikmenn í landsleikjum sem eru fastamenn hjá félagsliðum sínum. “Þessi strákar sem eru að spila þetta viku inn viku út eru undir miklu álagi og við megum ekki ætlast til of mikils af þeim”, sagði Atli og hélt áfram. “Hinir sem eru að verma bekkina eru líka oftast leiðir yfir því og veitir ekki af smá upplyftingu. Það er fyrir öllu að strákarnir hafi gaman að þessu”. Það bendir því flest til þess að fleiri leikmenn verði settir út í kuldann líkt og Guðni Bergsson í fyrra, en hann er ekki talinn eiga afturkvæmt í landsliðið eftir alveg hreint frábært tímabil það sem af er þessu ári.

Kristján Jóhannson, stórsöngvarinn heimsfrægi, hefur tekið að sér eitt stærsta hlutverkið í áramótauppfærslu Lundúnaballetsins á Hnotubrjótnum eftir Tchaikovsky. "Þetta er auðvitað mikill heiður og sýnir hve fjölhæfur listamaður ég er", sagði tenórinn mikli þegar við litum inn á æfingu. Kristján þarf að vísu að missa nokkur kíló fyrir frumsýninguna 29. desember, "...en það stóð nú til hvort eð er!”, sagði kappinn að lokum, en hann fer einmitt með hlutverk hnetunnar í sýningunni.

Veiðarfæri Safaness VE eru mikið skemmd eftir að togarinn fékk Færeyjar í trollið í gærnótt. Að sögn Baldurs Bollasonar, skipverja, var þetta talsvert mikið sjokk. "Við fundum bara hvernig skipið tók kipp og við þustum allir út á dekk. Við róuðumst þó þegar við sáum hvers kyns var - það tók samt dálítinn tíma að losa eyjarnar úr netinu - en það hafðist fyrir rest, þetta eru hraustir piltar," sagði Baldur að lokum, hann varðist allra frétta um afdrif eyjarskeggja en grunur leikur á að þeim hafi verið kastað fyrir borð, sökum smæðar.

Ríkisendurskoðun hefur ávítt Össur Skarphéðinsson, sjöunda þingmann Reykjavíkur, fyrir gróf og ítrekuð brot á þyngdarlögmálinu. Össur er kominn langt yfir kjörþyngd (þ.e.a.s. þyngd við síðustu kosningar) og var orðið nauðsynlegt að grípa í taumana. Starfsmaður Ríkisendurskoðunnar, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði "hvernig á maðurinn að geta tekið þátt í stjórnun landsins ef hann getur ekki einu sinni haldið eigin líkamsþyngd innan skynsamlegra marka."

Útvarpsmaðurinn góðkunni, Ólafur Páll Gunnarsson, var í nótt numinn af brott af sérsveit öfgasinnaðra Færeyinga og er nú í haldi í ríkisfangelsinu í Þórshöfn. Að sögn Einars Einarz, starfsmanns utanríkisráðuneytis er hér um leiðinlegan misskilning að ræða: "...svo virðist sem ofbeldismennirnir hafi tekið Óla Palla í misgripum fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta. Þeir hafa sennilega hlerað útvarpssendingar ríkisins og ályktað sem svo að 'forseti Rokklands' væri einn og sami maðurinn og forseti lýðveldisins, sem Færeyingar kalla einmitt Rokland."
Forsætisráðherra er nú í samningaviðræðum við færeysku landsstjórnina og freistar þess að ná Óla Palla heim aftur. "...hann er að reyna að fá þá til að samþykkja að taka Ólaf Ragnar í staðinn," sagði Einar að lokum.

Hvorki gengur né rekur í samningaviðræðum flugumferðarstjóra við ríkið og er svo komið að flestir þeirra hyggja á uppsagnir verði ekki komið til móts við kröfur þeirra. Helst er deilt um erótískt nudd, en sem kunnugt er sömdu sjúkraliðar um slík hlunnindi á dögunum. "Við viljum náttúrulega fá það sem sambærilegar stéttir hafa verið að fá og erótískt nudd er vissulega mikil bót fyrir félagsmenn okkar, sem þjást mjög af kynstíflu vegna gífurlegs álags í starfi", sagði Eggert Einarsson, talsmaður félags flugumferðarstjóra. Skv. heimildum Baggalúts hefur erótíski nuddarinn Gunnilla Strömgren, frá Noregi bæst í hóp þeirra sem berjast fyrir bættum kjörum flugumferðarstjóra, en hún er afar fær á sínu sviði og geysivinsæl hér á landi.

Enn bólar ekkert á Ingvari Þórðarsyni, eins af eigendum Kaffibarsins, en ekkert hefur sést til hans síðan veitingahúsinu var lokað á dögunum vegna vanskila.
"Ég og aðrir meðeigendur Ingvars höfum leitað út um allt, meira að segja á Múlakaffi, en hvergi finnum við hann," snökti Baltasar Kormákur brennuvargur.
Til að aðstoða við leitina hafa aðstandendur Ingvars brugðið á það ráð að láta útbúa leirmynd af honum og hefur styttan hlotið nafnið Inghvar. "Pabbi gerði styttuna, hann er ótrúlegur listamaður og hefur svo mikla næmni. Annars gengur bara allt vel með Hafið," sagði Baltasar að lokum.
Annar meðeigandi Ingvars, Damon Albarn, hafði þetta um málið að segja: "Iceland is my refuge from the strains of being a superstar. I love you all!"

Komið hefur í ljós að Emil Antonsson, bakari og eldheitur áhangandi knattspyrnuliðsins Liverpool var heilaþveginn af fyrrum leikskólakennara sínum. Við húsleit hjá Magneu Frostadóttur, fóstru, fundust m.a. Liverpool litabækur, dúkkur og bleyjur merktar liðinu, auk þess sem kassi af búningum í barnastærðum fannst.
"Ég vissi þetta alltaf, þetta var ákaflega ónáttúrulegur áhugi hjá stráknum," sagði Anton Rafnsson, faðir Emils og formaður Arsenal-klúbbsins á Íslandi. "...við móðir hans höfum sent strákinn í meðferð við þessu og höfum að sjálfsögðu kært kellingarbeygluna - mig hryllir við að hugsa um þann skaða sem hún hefur gert á heilbrigðu íslensku þjóðfélagi.
Aðvörun!
Þeir sem skulda stólpípuleigu Guðmundar og Gísla í Garðabæ eru hér með alvarlega áminntir að hafa greitt skuldir sínar við téða verslun eða samið um greiðslur fyrir helgi en sæta handrukkun ella.
Tenórarnir komnir
gott úrval - ýmsar stærðir.
Hljóðfæraverzlun Sigvalda
Flakkarar
Ný sending af flökkurum. Mikið geymslurými. Haldi frá áfengi og heimasætum. A.v.á.
Yfirlýsing
Þungyrði þau er ég lét ölvaður falla í garð Vilhjálms Egilssonar afturkalla ég hér með.
Reykjavík, Apríl 2009
Davíð Oddsson
Aðildarumsóknir
Eigum fyrirliggjandi ýmsar aðildarumsóknir; Evrópusambandið, NATO, OPEC, IRA, LIKUD, Sameinuðu arabísku – og margt fleira.
Umsókna og eyðublaðamiðstöð Eyþórs
Kassavanur
balroggsungi fæst gefins á gott heimili. A.v.á.