Kertasníkir hyggst sinna konum sínum betur, en þær eru ellefu talsins

Jólasveinninn Kertasníkir hefir ákveðið að setjast í í helgan stein að loknum þessum jólum. Ákvörðun hans kemur ekki á óvart, en búist var við að hann tilkynnti afsögn sína skömmu fyrir jól. "Ég hef bara ekki meira fram að færa, mínu hlutverki er lokið á þessum vettvangi. Þetta er geysierfitt starf og þreytandi, ef satt skal segja er ég eitt flakandi sár á sálinni og kominn tími til að hlúa að einstaklingnum bakvið jólasveininn", sagði Kertasníkir um málið á blaðamannafundi í Fjörukránni í morgun. Hann tilkynnti jafnframt að héðan í frá vildi hann vera kallaður Magnús, en það mun vera hans raunverulega nafn.

Óöld þeirri sem ríkt hefur í Argentínu er lokið, eftir að Jólasveinninn birtist þar óvænt í gær. Sveinki stillti til friðar, dreifði gjöfum til fólksins og veitti stjórnvöldum ráðgjöf í efnahagsmálum, en hélt síðan för sinni áfram enda átti hann enn eftir að fara til Afghanistan, Palestínu, Norður-Kóreu og á fleiri staði.

Viðbrögð ráðamanna við atburðum þessum voru misjöfn; Kofi Annan sagði að Jólasveinninn væri sendimaður Sameinuðu þjóðanna, Páfagarður lýsti því yfir að hér hefði svindlari verið á ferð, Bandaríkjastjórn sagðist ekki geta tryggt öryggi Jólasveinsins og Coca Cola hótar málssókn vegna brots á höfundarréttarlögum.

Verið er af gerðinni "Nukemaster 2000", eins og það sem hér sést

Framkvæmdir hefjast við kjarnorkuver á Þingvöllum snemma á næsta ári

Umhverfisráðherra hafnaði í gær hugmyndum um byggingu Kárahnjúkavirkjunar við mikinn fögnuð þingheims, sérstaklega stjórnarandstöðu. Í kjölfarið tilkynnti hún að ráðist yrði í byggingu kjarnorkuvers á Þingvöllum um miðjan janúar. "Það verður að segjast eins og er að gífurlegir fordómar eru gegn kjarnorku, sérstaklega á Íslandi, vegna meintrar mengunar. Þetta er alrangt! Kjarnorkuver gefa t.d. frá sér mun minni hávaðamengun en vatnsorkuver", sagði ráðherra um málið. Steingrímur Jamal og Össur fögnuðu mjög ákvörðun ráðherrans um að fara eftir tilmælum Skipulagsstofnunar, en vildu ekki tjá sig um framkvæmdir á Þingvöllum, enda hefðu þeir ekki kynnt sér þær fyrirætlanir nógsamlega.

Páfinn sver "Kiwaniseiðinn" í morgun

Jóhannes Páll II. hefur gengið í Kiwanisklúbbinn Vísi í Grafarvogi. Með þessu hyggst páfi taka virkari þátt en ella í hverskyns hjálparstarfi og umbótum fyrir hina þurfandi. Hann mun selja tannbursta í Kringlunni um helgina ásamt félögum úr Vísi og safna þannig fjármunum til kaupa á svokallaðri brisþurrku, en slíkt tæki mun ekki vera til í sjúkrahúsinu á Selfossi.

Eitt furðuverkanna

Komið hefur í ljós að tilraunir íslenskra vísindamanna til kynbóta á nautgripum hafa farið úrskeiðis svo um munar. Kom þetta fram þegar ljósmyndari Baggalúts fór í sérstaka njósnaferð til Hríseyjar þar sem tilraunirnar fóru fram.

Í tilraununum, sem hafa farið fram með mikilli leynd, voru notaðir norskir fósturvísar til að bæta ímynd íslenskra nautgripa, sem staðið hefur höllum fæti að undanförnu.

Því miður virðast einhverjir annarlegir - hugsanlega ástralskir - fósturvísar hafa slæðst með og eru afleiðingarnar vægast sagt skelfilegar, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Freðryk er farinn að borga ansi mikið fyrir skammtinn sinn.

Samkeppnisstofnun hefur borist ábending um að íslenskir eiturlyfjasalar hafi um langt skeið haft samráð um verð á vörum sínum. Af þessum sökum gerði lögreglan húsleit í nótt hjá nokkrum þeim helstu.

„Við fundum eins og venjulega ýmis eiturlyf og áhöld til neyslu, en einnig ýmis skjöl sem voru tekin til nánari athugunar,“ sagði Einar Blaðkan rannsóknarlögregla.

„Mig hefur grunað þetta lengi,“ sagði Freðryk Reykdal eiturlyfjaneytandi. „Grammið hefur alltaf hækkað á nákvæmlega sama tíma hjá öllum dílerum. Rosalega steikt.“

Landssamtök dópsala (LSD) hafa mótmælt aðgerðunum harðlega. „Ályktanir Samkeppnisstofnunar eru hreinlega skakkar. Álagning á verð eiturlyfja ræðst af flutningskostnaði, áhættuþóknun burðardýra og alls kyns fleiri þáttum," sagði Frank Lyngdal fulltrúi samtakanna. „Það er alger sýra að halda þessu fram."

Eiturlyfjasalarnir sem leitað var hjá voru færðir til yfirheyrslu hjá lögreglu en hefur nú verið sleppt og eru horfnir til fyrri starfa.

Þingmönnum var mikið niðri fyrir eftir átökin

Til átaka kom í gærkvöld á litlu-jólum alþingismanna. Allt hafði gengið að óskum fram eftir kvöldi og gengu þingmenn kringum jólatréð og sungu hástöfum í sátt og samlyndi. En svo birtist jólasveinninn og hóf að útdeila gjöfum. Það vakti mikla gremju stjórnarandstöðunnar að þingflokkur Samfylkingar fékk aðeins mandarínu meðan aðrir þingmenn fengu stóra poka með sætindum.

Steingrímur J. reyndi að hugga Össur, sem fór að hágráta og sagði að "... svona lagað gerir maður ekki við óvita."

Þá brást Halldór Blöndal ókvæða við og svaraði að "...þessir kommúnistar" ættu nú bara að vera að fegnir að fá eitthvað, "þið haldið ekki einu sinni jól!"

Eftir það var ekki aftur snúið og brutust út fjöldaslagsmál. Lögregla kom á staðinn og beitti táragasi á hópinn og voru rúmlega fjörutíu þingmenn látnir dúsa í steininum í nótt.

Davíð Oddson, sem opinberlega var ekki á staðnum sagðist harma þetta mjög: "Þetta átti nú bara að vera smá djók hjá jólasveininum sko - maður má aldrei gera neitt skemmtilegt, mórallinn er svo asnalegur þarna."

Ein hinna handteknu

Hópur grænlenskra ungmenna gekk berserksgang í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eftir að rokktónleikum sem þau komu fram á lauk. Mikil ölvun var meðal hópsins og veittist hann m.a. að vegfarendum og lögreglu, auk þess sem rúður voru brotnar og bílar skemmdir. "Leiðtogi þeirra var samt verstur, lágvaxin stúlka sem öskraði á mig og lét öllum illum látum," sagði Randver Túliníus aðstoðarvarðstjóri.

Hópurinn gisti fangageymslur í nótt, en lögreglan vildi láta þess getið að vanalega væru grænlenskir ferðamenn til fyrirmyndar.

Garður Skúla í Rimahverfi

Ellert Antonsson, íbúi í Rimahverfi í Grafarvogi hefir kært Skúla Nóason, nágranna sinn, til umhverfisráðuneytisins fyrir að fara offari í jólaskreytingum. Í rökstuðningi með kærunni segir: "Téður Skúli hefir alla tíð dáðst að skrauti kæranda, eins og allir sem eiga leið framhjá húsi hans og garði. Nú hefir hann hinsvegar, með hjálp kunningja sinna hjá Rafveitunni, sem m.a. veita honum rausnarlegan afslátt af orkuverði og ýmsum rafbúnaði auk þess að hjálpa honum við uppsetningu, farið hamförum í skreytingum. Svo mjög hefir hann skreytt að girða hefir þurft garðinn af og merkja með viðvörunarskiltum um lífshættu vegna háspennu og rafmengunar. Í ljósi þessa, og þess að undirritaður hefur umtalsverðar tekjur af skoðunarferðum um garð sinn, er þess óskað að kærða verði gert að fjarlægja allt jólaskraut úr og af eign sinni". Búist er við greinargerð umhverfisráðherra um málið innan 9 mánaða.

Það var tómlegt um að litast á Skólavörðuholti í dag.

Þegar Anton Davíðarson, hringjari mætti til vinnu sinnar í morgun brá honum í brún. Óprúttnir náungar höfðu gert sér lítið fyrir og fjarlægt Hallgrímskirkju af Skólavörðuholtinu. Kirkjan sem hefur verið eitt helsta kennileiti Reykjavíkur um langt skeið er engin smásmíði og því hefur sennilega verið um vel undirbúinn og skipulagðan glæp að ræða. "Þetta er náttúrulega helv. bagalegt svona fyrir jólin," sagði Anton "...ég veit það átti að reyna að nota kirkjuna eitthvað í næstu viku."

Lögregla rannsakar nú málið en böndin berast að samkeppnisaðilum, þ.e. öðrum kirkjum og svo aðstandendum Smáralindar í Kópavogi.

        1, 2, 3 ... 530, 531, 532 ... 549, 550, 551  
Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Glæfrar

Tek að mér glæfrar við ýmis tækifæri.

Glanni Glæfur.

Í fjarveru minni

til næstu áramóta gegnir hr. Ólafur Helgason störfum mínum.
Sveinn Gunnarsson, handrukkari.

2 fyrir 1 til Pyongyang

Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum við bætt við fjórum sætum í ævintýra- og sælkeraferð til Pyongyang í N-Kóreu.

Lúdóferðir

Messa

Tek að mér að messa í heimahúsum á aðfangadag gegn vægri greiðslu og/eða mat. Kann jólaguðspjallið utanbókar.

Dúllubossakvöld

frímúrara í kvöld kl. 21.00. Fjölmennum.

Sönnunargögn

Eigum fyrirliggjandi ýmis sönnunargögn, engin sönnunarbyrði áhvílandi. A.v.á.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA