Frétt — Enter — 9. 1. 2017
Hægrimenn mynda hægristjórn – af því að þeir geta það
Bjarni er svokallaður hægrimaður. Þeir eru mest fyrir hægri stjórnir.

Íslenskir hægrimenn hafa ákveðið að mynda svokallaða hægristjórn.

Hefur þetta komið ýmsum töluvert í opna skjöldu, einkum fólki á vinstri væng stjórnmálanna. Telja margir sig illa svikna, sérí lagi þeir sem ekki kusu flokkana þrjá sem nú geta myndað stjórn.

Mest eru þó vonbrigði þeirra sem kusu einn þessara flokka, en hefðu kannski mögulega kosið eitthvað allt annað, hefðu þeir kynnt sér hvað þeir voru að kjósa yfir höfuð.

Aðspurður um það hvers vegna í ósköpunum ætlunin sé að mynda hægri stjórn á þessum tímapunkti sagði væntanlegur forsætisráðherra undrandi: „Ööö … beisikklí af því að við getum það.“

Flugbíll

Vel með farinn flugbíll, ekinn/floginn 480.000 km. er til sölu. Tilboð óskast.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 3. 1. 2017
Veganúar hefur alvarleg áhrif á vegakerfi
Svona var ástandið í Lækjargötu eftir að „vegönsin“ höfðu sleikt nægju sína í morgun.

Veganúar stendur nú sem hæst, með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum.

Þetta æði hefur nú þegar haft haft alvarleg áhrif á gatnakerfi landsins, en það lýsir sér þannig að svonefnd „vegöns“ leggjast nú á vegi landsins og ýmist soga eða sleikja úr því öll næringar– og steinefni.

Víða hafa myndast stórar holur í malbik og bundið slitlag, einkum í þéttbýli. Verst er ástandið þó í miðborg Reykjavíkur þar sem mikið er um hipsteragreni og fólk sem aðhyllist líflausan lífstíl.

Eini ljósi punkturinn er að vegönsin binda allt svifryk í borginni með óhóflegri munnvatnsframleiðslu, sem óumflýjanlega fylgir veganeyslunni.

Frétt — Enter — 9. 11. 2016
Erfðabreytt sætkartafla kjörin forseti Bandaríkjanna
Trump (t.h.) ásamt fjölskyldu sinni þegar tilkynnt var um úrslitin.

Dónald „Jeremíasminn“ Trump var í morgun réttkjörinn forseti Bandaríkja Norður–Ameríku. Mun það vera í fyrsta skipti sem erfðabreytt sætkartafla gegnir þessu eftirsótta embætti.

Tilsjónarmenn Trumps eru að vonum kátir með þetta, þrátt fyrir að hafa ákveðnar áhyggjur af ýmsum aukaverkunum sem umbreytingarferlið hefur haft í för með sér.

„Hann hatar auðvitað allt sem ekki er appelsínugult. Honum er skiljanlega meinilla við grænmetisætur — og raunar alla sem leggja sér ekki eingöngu rautt kjöt til munns. Svo er hann mjög andsnúinn konum, eftir að mótframbjóðandi hans reyndi í ógáti að leggja sér hann til munns fyrir fyrstu kappræður þeirra. Annars er þetta ágætis karl… karltafla.“

Frétt — Enter — 4. 11. 2016
Hófsamur miðjuhákarl gleypir fjölskyldu úr Efra–Breiðholti
Hákarlinn hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir sjálfstæðisflokkinn á undanförnum árum.

Fjölskylda úr Efra–Breiðholti varð fyrir því óláni nú síðdegis að vera étin af sturluðum hákarli, þar sem þau voru að leita að marflóm og plastafgöngum í soðið.

„Þetta er ofsalega leiðinlegt, sérstaklega í ljósi þess að hákarlinn skilgreinir sig sem hófsaman miðjuhákarl og hefur talað mikið fyrir félagslegum jöfnuði, launajafnrétti og bættri heilbrigðisþjónustu undanfarið,“ segir talsmaður hákarlsins.

Svo virðist sem eðli hákarlsins hafi einfaldlega borið greyið litla ofurliði þegar hann sá fjölskylduna paufast þetta í fjörunni — en honum til varnar virkaði hún algerlega bjargarlaus og virtist í fljótu bragði ekki hafa neitt félagslegt bakland.

Gefins

Fullt af gömlu ónýtu drasli. Einnig fæst ódýrt á sama stað 1000 púsla púsluspil sem vantar 327 púsl í.
A.v.á.

Frétt — Enter — 1. 11. 2016
Satan segir sig úr kjararáði
Satan hefur setið í kjararáði frá stofnun þess á miðöldum.

Satan Engilbert Guðrúnarson, eða djöfullinn sjálfur, eins og hann er jafnan kallaður, hefur sagt sig úr kjararáði „af prinsippástæðum“ eins og það er orðað í fréttatilkynningu.

„Þetta var bara túmöttsj fyrir mig, maður verður nú að hafa einhver smá siðferðisviðmið,“ segir Satan, en honum blöskraði nýjasta hækkun ráðsins þar sem laun helstu embættismanna þjóðarinnar voru hækkuð „upp úr öllu fokkfjandans andskotans valdi“.

Er þetta ákveðinn skellur fyrir ráðið, en Satan er einn af stofnendum ráðsins og helstu hugmyndafræðingum þess.

Varamaður Satans, Sauron Einar Thors, mun taka sæti hans í ráðinu.

Frétt — Enter — 14. 9. 2016
Sjaldgæfur pókímóni tryggði samþykkt búvörusamninga
Snorlaxinn er afar tignarleg skepna, rétt eins og forsætisráðherra þjóðarinnar.

Komin er skýring á því hvers vegna svokölluð „stjórnarandstaða“ lufsaðist ekki til að kjósa gegn nýjum búvörusamningi í gær.

Svo virðist sem afar sjaldgæfur pókímoni, svokallaður Snorlax, hafi narrað meginþorra þingheims út úr Alþingishúsinu skömmu fyrir atkvæðagreiðsluna — eftir að hafa sést á vappi á Austurvelli. Einungis þingflokkur Bjartrar Framtíðar varð hans ekki var, því þau eru öll í banni fyrir að „spoofa“ ítrekað.

Grunur leikur á að forsætisráðherra sjálfur hafi komið fyrir svokölluðu „lúri“ við styttu Jóns Sigurðssonar — og segja nokkrir sjónarvottar að hann hafi sjálfur verið í gervi Snorlaxins. En það hefur ekki verið staðfest.

Frétt — Enter — 16. 8. 2016
Geitungar hafa ekki efni á að búa í miðborginni
Það er nánast ógerningur fyrir unga geitunga að eignast sérbýli í miðborginni í dag.

Lítið hefur verið um geitunga í miðborg Reykjavíkur í ár, en þeim mun meira í úthverfum borgarinnar. Skýringin er einfaldlega sú að bú geitunganna hafa í auknum mæli verið keypt upp af fasteignafélögum og leigð út til erlendra ferðamanna — enda eftirspurnin mikil.

Talsmaður Félags íslenskra holu– og trjágeitunga (FÍHT) segir ástandið alvarlegt, ekki bara hjá hans félagsvespum, heldur einnig hjá býflugum, veggjatítlum og jafnvel miðbæjarrottum. „Túristunum er einfaldlega troðið í hverja glufu, leigan skrúfuð upp og við hraktir upp í fokkings Árbæ, eða eitthvað þaðanaf verra!“

Hann segist þó telja að úrræði úrræði ríkisstjórnarinnar um ráðstöfun séreignasparnaðar inn á húsnæðislán geti komið sér vel — enda fari geitungar mjög ungir inn á vinnumarkað en komist sjaldnast óskaddaðir á lífeyrisaldur.

Njósnarar

ný sending af blásýruhylkjum komin. Negul-, vanillu- og möndlulykt. Margar stærðir. Fullum trúnaði heitið.
Njósnavöruverslun Stefáns og Báru

Frétt — Enter — 7. 6. 2016
Hanna Birna hættir í fýlu
Aðeins Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið lengur samfleytt í fýlu en Hanna Birna.

Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur ákveðið að hætta í fýlu. Þetta tilkynnti hún flokksmönnum sjálfstæðisflokksins í tölvupósti sem hún sendi út í dag.

Hanna Birna segir í bréfinu að ástæðan sé einföld, henni sé orðið frekar illt í munnvikunum og nú sé kominn tími til að brosa, í það minnsta út í annað. Ákvörðunin hafi þó ekki verið auðveld.

Gert er ráð fyrir að Hanna kynni fyrirhugaðan uppistandstúr sinn um landið síðar í vikunni.

Frétt — Enter — 12. 4. 2016
Siðareglur Baggalúts felldar úr gildi
Reglurnar voru ritaðar á salernispappír ritstjórnar árið 2001, í flippi.

Siðareglur ritstjórnar Baggalúts hafa verið felldar úr gildi. Er þetta gert til að auðvelda skrif og umfjöllun miðilsins m.a. um siðblinda drullusokka með tað í heila stað, græðgisdrifin skunkakompaní og pólitíska táfýlusokka.

Telur ristjórn sér skylt að geta kallað hlutina sínum réttu nöfnum, en núverandi reglur koma t.d. í veg fyrir að ákveðnir stjórnmálamenn séu kallaðir froðuheilar, auðvaldsskækjur, frethanar og jafnvel málefnalegar pungfrunsur. Sem er miður.

Var ákvörðunin samþykkt einhljóða, eftir að gengið var úr skugga um að reglurnar væru yfirleitt til.

Frétt — Númi Fannsker — 6. 4. 2016
Skjalataska ríkisráðs horfin
Skjalataska ríkisráðs var nýuppfærð sem svokallað „basic survival kit“ í samræmi við neyðarreglur Almannavarna.

Skjalataska ritara ríkisráðs er horfin úr peningaskáp stjórnarráðsins. Ritari ríkisráðs hafði nýverið, í samráði við skemmtanastjóra stjórnarráðsins, látið uppfæra innihald skjalatöskunnar í samræmi við neyðarreglur.

[*Uppfært]
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sást í hádeginu á hlaupum upp Esjuna með töskuna, partýhatt á höfðinu og Risaflugeldapakka frá Landsbjörg.

Frétt — Enter — 5. 4. 2016
Þessi heysáta er í augnablikinu forsætisráðherra
Sátan hefur unnið ýmis trúnaðarstörf fyrir framsóknarflokk.

Samkvæmt nýjustu heimildum gegnir nú þingeysk heysáta embætti forsætisráðherra.

Fréttin verður uppfærð ef eitthvað breytist.

        1, 2, 3, ... 381, 382, 383  


§ Spiladós




§ Úr safni Baggalúts:
ÚR SAFNI — 1. 10. 2014 — Enter

„Ég brosti alls ekki, ég glotti pínu út í annað vegna þess að gaurinn hellti soyasósu yfir buxurnar sínar. Það …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 15. 8. 2003 — Númi Fannsker

Hvalveiðimenn brýndu skutla sína í morgunsárið og héldu til hvalveiða í fyrsta skipti í langan, langan, langan tíma. Meðal þeirra var …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 8. 2. 2010 — Enter

Bandarískur sérfræðingur í samningatækni kemur til landsins á morgun og verður Íslendingum innan handar í viðræðum við Hollendinga og …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Spesi — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 6. 2. 2003 — Enter

Lítið hefur farið fyrir Færeyingum og yfirlýstri heimsyfirráðastefnu þeirra undanfarið. Á því varð þó breyting í nótt þegar færeyskum öfgahópi …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 31. 10. 2009 — Enter

Fylgi galdrakarlsins Kjartans eykst um 4 prósentustig frá síðasta mánuði, í könnun sem Gallup gerði meðal strumpa í liðinni viku Fylgi …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 7. 3. 2003 — Enter

"..þetta er bara sama sagan og alltaf þegar við reynum að kynna eitthvað nýtt hérna," sagði Fylkir Andrason, lögregluþjónn og …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Enter — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 2. 12. 2001 — Spesi

Á síðustu dögum hafa verið kannaðar birgðir Íslendinga af bóluefni við færeysku, vegna hættu á að landið verði fyrir tungumálaárásum. …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 30. 9. 2002 — Myglar

Fylkismenn urðu bikarmeistarar í knattspyrnu karla á laugardaginn, er þeir sigruðu lið Fram í úrslitaleik með þremur mörkum gegn einu. …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 3. 11. 2005 — Enter

19. dags nýkalvínistar seinni kirkju hinna heilögustu móður bíða nú spenntir komu Messíasar en henni var spáð af helsta …

»MEIRA