Ekki er ósennilegt að þessi fallegi framsóknarkoppur verði fyrir valinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að sannkallaðra stórtíðinda geti mögulega verið að vænta um helgina. Kannski.

„Jú, ég geri nú frekar ráð fyrir því,“ sagði Sigmundur Davíð þegar fjölmiðlar spurðu hann ítrekað hvort hann ætlaði sér að fara á salernið um helgina.

Sem er stórfrétt!

Ekki er talið ólíklegt að Sigmundur muni líka matast, klæða sig sjálfur og líta til veðurs um helgina. Og munu fjölmiðlar að sjálfsögðu fylgjast spenntir með.

Sigmundur átti „gott spjall“ við fulltrúa pírata í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið hraustlega á því undanfarna daga í „stjórnarmyndunarviðræðum.“ Hann hefur hitt fulltrúa allra flokka og „rætt áherslur Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili.“

Búast má við ákvörðun um stjórnarsamstarf síðar í dag, þegar panodilbirgðir flokkanna hafa verið uppfærðar.

Hér sést verkamaður strita við lestur ægilangs athugasemdahala.

Lagt hefur verið til að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verði framvegis frídagur Facebook fíkla — einnig alþjóðlegur.

Helstu rökin fyrir þessu eru þau að verkafólk í dag geri hvort eð er lítið annað en að hanga á samfélagsmiðlum í vinnunni — og eins þegar heim kemur.

Því væri mun nær að gefa því hvíld frá þessu nýja kúgunartæki hinna vinnandi stétta, með öllum sínum lækum, brosköllum, potum, leikjabeiðnum og athugasemdum á borð við „sæta-sæta“ og „flott hjá þér!“

Þegar hefur verið stofnaður hópur á Facebook sem skýrir fyrirkomulagið nánar.

Djassarar þekkjast á sljóu augnaráði og óaðfinnan-legri fingrasetningu.

Almannavarnir hafa gefið út viðvörun vegna alþjóðlega djassdagsins, sem er í dag — og hefur fært viðbúnaðarstig í appelsínurautt.

Er fólk beðið um að halda sig innandyra, helst með heyrnarhlífar eða annan varnarbúnað.

Sérstaklega er varað við lausagöngu saxófónleikara, sem eiga það til að bresta að tilefnislausu í svokallað sóló, sem getur valdið óþjálfuðum eyrum allnokkrum óþægindum.

Hér sjást nepalskir jarðskjálftafræðingar furða sig á vælinu.

Vælið og sífrið í íslenskum vinstrimönnum hefur mælst á jarðskjálftamælum og veðurathugunarstöðvum um allan heim.

Mest var kveinstafabylgjan snemma í morgun og náði hún þá allt til Katmandu í Nepal.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi vælkippum eitthvað fram eftir vikunni, eða þar til Eurovision tekur yfir áhugasvið þjóðarinnar.

Fólk hrópaði ókvæðisorð að björgunarsveitarmönnum í morgun.

Björgunarsveitarmanni var refsað af bílstjórum tveggja verulega illa búinna lúxusbifreiða í morgun.

Björgunarsveitarmaðurinn hafði losað bifreiðarnar úr vígalegum skafli, með miklum erfiðismunum og lagni. Í stað þess að þakka honum fyrir brugðust mennirnir illa við, kölluðu hann öllum illum nöfnum, bleyttu hjá honum buxurnar og tróðu snjó innan á hann. Þá stálu þeir af honum húfunni og sögðust ætla að sjá til þess að hann yrði rekinn úr starfi.

Þess má geta að bílstjórarnir bjuggu skaflinn til sjálfir með snjóvél sem þeir festu kaup á fyrir nokkrum árum — og hugðust nota til að búa til skíðaparadís í görðum sínum.

Þessi krúttlegi hundur má ekki heita Skíthaus

Hunda­nafna­nefnd hefur samþykkt hunds­nafnið Nero en hafnað hunds­nafninu Neró. Millinafnið Fenris er samþykkt og sömuleiðis hundsnafnið Þórður og tíkarnafnið Gufubaldína. Hins vegar er hunds­nöfnunum R2D2 og Kolurr og tíkarnafninu Lassie hafnað.

Í greinargerð nefndarinnar um hundsnafnið Nero segir að nafnið sé “geðveikt flott” og teljist að öðru leyti uppfylla smekk nefndarmanna um hundanöfn. Hundsnafnið Neró (með ó-i) sé hins vegar “mjög hallærislegt.”

Enn er beðið með eftir­væntingu úrskurða frá ýmsum öðrum nafna­nefndum, s.s. katta­nafna­nefnd, fyrirtækja­nafnanefnd og Bubbalaga­nafnanefnd.

Alfons er grænmetisæta.

Baggalútur hefur ákveðið að koma til móts við óákveðna kjósendur, sem geta ekki með nokkru móti ákveðið sig, eða hugsað sér að kjósa þá flokka sem í boði eru.

Hamsturinn Alfons.

Alfons er upplýstur einvaldur, heiðarlegur og kurteis — og með mikla persónutöfra. Hann þykir sameina loðið yfirbragð framsóknar, einlægni Sjálfstæðisflokks, örvinglan Samfylkingar, krúttleika VG, ungæðishátt Bjartrar framtíðar, árásargirni Pírata og óbeislaðan ástríðuhita smærri framboðanna.

Hægt er að kjósa Alfons með því að gleypa atkvæðaseðilinn sinn.

Pilturinn er dæmigert hipsteratröll.

Karlmaður um tvítugt liggur þungt haldinn eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af svonefndum hip-sterum.

Hipsteranotkun er mikið vandamál meðal ungs fólks, en óhófleg neysla þeirra getur valdið óhóflegri tískuvitund, óreglulegu fatavali, misnotkun samfélagsmiðla og félagslegum ofþroska.

Eru foreldrar og forráðamenn mennta- og háskólanema beðnir að vera á sérstaklega varðbergi gagnvart óhefðbundinni hattanotkun, ósmekklegri gleraugnanotkun og sjúklegum áhuga á símaljósmyndun.

94% myndu vilja Sigmund ef hann væri James Spader.

Ríflegur meirihluti landsmanna vill að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, verði næsti forsætisráðherra — að því gefnu að hann væri einhver allt annar en hann er.

53% myndu vilja hann ef hann væri stelpa, 62% ef hann væri tuskubangsi, 84% ef hann væri Mugison og 94% myndu vilja hann sem forsætisráðherra ef hann ef hann væri James Spader.

Aðeins þriðjungur myndi vilja hann ef hann er bara Sigmundur Davíð, eða eitthvað svoleiðis.

        1, 2, 3, ... 549, 550, 551  
Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Til sölu

Vinsælt enskt knattspyrnulið í góðum rekstri. Einnig á sama stað tónlistarhús, óklárað.
Afgreiðsla vísar á

Nokkrir duglegir sjómenn

óskast til sjórána. Upplýsingar hjá Gunnlaugi Stefánssyni, Hafnarfirði.

Meðleigjandi óskast

Tvær 18 ára nærfatafyrirsætur óska eftir laghentum, karlkyns meðleigjanda. Afgreiðsla vísar á.

Frá Fiskistofu

Gildi hefur tekið reglugerð nr. 132.b.11.2008, um bann við áti á öðru meðlæti en kartöflum með eftirfarandi fisktegundum: Ýsu, þorski, ufsa, loðnu, skarkola, steinbít og krossfiski.

Nauðungaruppboð

Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).

Búraútsala

Eigum fyrirliggjandi mikið af búrum í öllum stærðum og gerðum. Einnig byggjar á sanngjörnu verði. Gæludýraverslun Bárðar.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA