Frétt — Spesi — 15. 4. 2002
Efnahagsástand Argentínu versnar lítillega
Duhalde segir ástandið vera tímabundið

Ríkisstjórn Argentínu varð fyrir áfalli í morgun þegar gengi pesóans féll um 0,02%. Hefur gengið ekki fallið svona hratt síðan við lok stríðsins um Falklandseyjar fyrir 20 árum.

“Þetta er náttúrulega frekar leiðinlegt,” sagði Eduardo Duhalde núverandi forseti landsins í spjalli við Baggalút. “Við erum samt í mjög góðum fíling, svona smá bakslög koma af og til. Þetta lagast.”

Eins og kunnugt er hefur landið ávallt staðið afar traustum fæti í efnahagsmálum og viðskiptalíf þar verið í miklum blóma. Nú lítur hins vegar út fyrir að Argentínumenn þurfi aðeins að herða sultarólarnar, þangað til ástandið kemst í samt lag.

Eistu týndust

í hestaferð um Austurland milli jóla og nýárs.
Fundarlaun!
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Er netþjónabú í garðinum þínum?

Láttu okkur sjá um að eyða því áður en húsið fyllist af þráðlausu neti. Meindýraeyðar Mjódd.

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Fyrstu lóurnar

komnar. Ein stök á 1.000 kr. eða þrjár saman í knippi á 2.500 kr.

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 23. 8. 2009 — Enter

Tveir karlmenn eru nú í vörslu lögreglu, en þeir halda því fram að þeir hafi strokið úr hinni alræmdu skrímsladeild …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 5. 12. 2002 — Spesi

Sverrir Jakobsson datt heldur betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann hitti fyrrum gítarleikara hljómsveitarinnar Queen, Brian May, á ráðstefnu …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 11. 4. 2002 — Spesi

Ísraelar hafa dregið herlið sitt til baka frá öllum sjálfstjórnar-svæðum Palestínumanna í landinu. Kemur þetta í kjölfar harðorðra mótmæla íslenskra …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
LESBÓK — Spesi — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 10. 12. 2012 — Enter

Útlendingar hafa keypt allt hlutafé móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, fyrir fáránlega mikinn pening. Munu þeir hafa látið freistast af haganlega sömdu …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 22. 5. 2002 — Enter

Flokkur H-lista, lista Húmanista í Reykjavík, réðist í nótt inn í byggingu ríkisútvarpsins við Efstaleiti og tók starfsmenn fréttastofu í …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 1. 11. 2009 — Enter

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, hefur tilkynnt félögum sínum að hún geti reimað sjálf skóna sína. Hún hafi því tekið þá ákvörðun …

»MEIRA

LESBÓK — Spesi — Sálmur
 
LESBÓK — Enter — Leikrit
 
ÚR SAFNI — 26. 11. 2008 — Enter

Sérstök teymi endurskoðenda hafa verið skipuð til að til að rannsaka viðskipti inni í bönkunum eftir hrun þeirra. Þau teymi …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 7. 1. 2002 — Númi Fannsker

Megas hefur verið útnefndur Borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þetta kom fram í viðtali Baggalúts við skáldið og sagði hann þetta …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 28. 4. 2008 — Númi Fannsker

Ein merkasta æla sögunnar er talin hafa fundist um borð í skútu í Ísafjarðarhöfn um helgina. Sigmar Ólafsson tamningamaður fann …

»MEIRA