
Ég, Sæmundur Sæmundsson, ullsmíðameistari er að kaupa ull, ullarpeninga og ullarskartgripi. Einnig veiti ég góð ráð og upplýsingar.
Kaupi alla ull, nýlega gamla og illa farna.
Verið velkomin!

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.
Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.
Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.
Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.
Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.
Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.
Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.
Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.
Og raunar sterku víni líka.
Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.
Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.
„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“
Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.

Veður batnaði stórkostlega á höfuðborgarsvæðinu eftir að framsóknar- og sjálfstæðisflokkur hófu stjórnarmyndunarviðræður. Sérstaklega á Seltjarnarnesi, á Reykjanesi og í Garðabæ.
Sól skín í heiði, hiti fer ört hækkandi og hin svokallaða „hægri austanátt“ er allsráðandi.
Áfram er þó skítaveður úti á landi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að sannkallaðra stórtíðinda geti mögulega verið að vænta um helgina. Kannski.
„Jú, ég geri nú frekar ráð fyrir því,“ sagði Sigmundur Davíð þegar fjölmiðlar spurðu hann ítrekað hvort hann ætlaði sér að fara á salernið um helgina.
Sem er stórfrétt!
Ekki er talið ólíklegt að Sigmundur muni líka matast, klæða sig sjálfur og líta til veðurs um helgina. Og munu fjölmiðlar að sjálfsögðu fylgjast spenntir með.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið hraustlega á því undanfarna daga í „stjórnarmyndunarviðræðum.“ Hann hefur hitt fulltrúa allra flokka og „rætt áherslur Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili.“
Búast má við ákvörðun um stjórnarsamstarf síðar í dag, þegar panodilbirgðir flokkanna hafa verið uppfærðar.
Til sölu
Vel með farinn fimmþúsundkall. Aðeins beyglaður efst í vinstra horni. Tilboð óskast.
Kassavanur
balroggsungi fæst gefins á gott heimili. A.v.á.
Geislasverð
Til sölu lítið notað geislasverð, bleikt. Rafhlaðan á að duga í 1.000 ár í viðbót. Enn í ábyrgð (í nálægu stjörnukerfi).
Heróín
Eldri borgarar, munið heróínkynninguna í kvöld. Fyrstir koma fyrstir fá.
Dreki.
Nývanaður, 3ja alda dreki fæst gefins á gott heimili. Gegnir nafninu Filipus. A.v.á.
Munum eftir bankamönnunum
Nú er hart í ári hjá litlu bankamönnunum, sem eru vanir sífeldu góðæri síðan þeir klöktust út úr háskóla. Við mælum með að þeim sé gefið bankabygg, sem má nálgast í kjörbúðum.
Bankamannavinafélagið