Maðurinn er einlægur aðdáandi Ferdinands í Mogganum.

Karlmaður á sextugsaldri, búsettur í Grafarholti, er mögulega bæði leiðinlegri og meira óspennandi en eldhúsdagsumræður á Alþingi.

Maðurinn er með doktorsgráðu í skjalavörslu og býr einn með aldraðri móður sinni og naggrísnum Antoni. Hann hefur félagsvitund á við skófir og hefur mest gaman af að „brása á textavarpinu og horfa á franskbrauð ristast,“ eins og hann orðar það sjálfur.

Ekki er talið ólíklegt að RÚV geri á næstunni raunveruleikaþátt um líf mannsins. Að því gefnu að hann reynist leiðinlegri en eldhúsdagsumræðurnar.

Leiðtoginn hnellni tók nokkur létt dansspor á lokaæfingu.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.

Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.

Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

Dressið er handspunnið af 300 tælenskum lögfræðingum á hefðbundnum lögfræðingataxta.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.

Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Brot úr snappi frá framsoknarfrenzy til bbbeibmaster.

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.

Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.

Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Útigangsmenn geta nú áhyggjulausir veitt sér til matar í miðborginni.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.

Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.

Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaðurinn er mjög „virkur“ í athugasemdum.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.

Og raunar sterku víni líka.

Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.

Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni og Sigmundur brugðu á leik fyrir ljósmyndara Baggalúts og rifu upp skuldavanda heimilanna með rótum í blíðunni í Grafningnum.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.

„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“

Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.

Viðey var óvenju blómleg í morgun.

Veður batnaði stórkostlega á höfuðborgarsvæðinu eftir að framsóknar- og sjálfstæðisflokkur hófu stjórnarmyndunarviðræður. Sérstaklega á Seltjarnarnesi, á Reykjanesi og í Garðabæ.

Sól skín í heiði, hiti fer ört hækkandi og hin svokallaða „hægri austanátt“ er allsráðandi.

Áfram er þó skítaveður úti á landi.

Ekki er ósennilegt að þessi fallegi framsóknarkoppur verði fyrir valinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að sannkallaðra stórtíðinda geti mögulega verið að vænta um helgina. Kannski.

„Jú, ég geri nú frekar ráð fyrir því,“ sagði Sigmundur Davíð þegar fjölmiðlar spurðu hann ítrekað hvort hann ætlaði sér að fara á salernið um helgina.

Sem er stórfrétt!

Ekki er talið ólíklegt að Sigmundur muni líka matast, klæða sig sjálfur og líta til veðurs um helgina. Og munu fjölmiðlar að sjálfsögðu fylgjast spenntir með.

Sigmundur átti „gott spjall“ við fulltrúa pírata í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið hraustlega á því undanfarna daga í „stjórnarmyndunarviðræðum.“ Hann hefur hitt fulltrúa allra flokka og „rætt áherslur Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili.“

Búast má við ákvörðun um stjórnarsamstarf síðar í dag, þegar panodilbirgðir flokkanna hafa verið uppfærðar.

Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Helgarpabbi

óskast til að gæta 7 ára drengs aðra hverja helgi. Þarf að vera ca. 180 cm á hæð og með mikið svart skegg. Góð þekking á húsdýragarðinum og helstu ísbúðum æskileg. A.v.á.

Atvinna óskast

Miðaldra maður óskar eftir atvinnu við afgreiðslustörf, ljónatamningar eða innheimtu. A.v.á.

Húsnæði óskast

Rótgróin vélhjólasamtök, reyklaus, óska eftir að leigja lítið einbýli miðsvæðis í Rvk. Skilvísum greiðslum heitið.

Nýbakaðir foreldrar

Ilmandi með morgunkaffinu. Mikið úrval. Hagstætt verð.

Brauðvinnsla Bjartmars

Frá Gatnamálastjóra

Terlínjakkarnir komnir. Margar stærðir. Svartir og bláir. Straufríir.

Lítill smábíll

fæst í skiptum fyrir lítinn smábíl. A.v.á.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA