LoveThor® er nú í svokölluðu „aðlögunarferli,“ þar til hann tekur formlega við embætti.

Talningu atkvæða í forsetakosningunum í Egyptalandi er lokið. Úrslitin komu nokkuð á óvart en samkvæmt þeim er Ástþór Magnússon, einnig þekktur sem LoveThor®, næsti forseti landsins.

Aðspurður sagðist Ástþór sjálfur ekki muna eftir að hafa gefið kost á sér í þessum fyrstu forsetakosningum í sögu Egyptalands, en taldi að það gæti verið að Sverrir Stormsker hefði safnað fyrir sig undirskriftum á egypskum vefsíðum, sem gerðu hann kjörgengan.

Ástþór segir jafnframt í yfirlýsingu að hann muni nú hrinda í framkvæmd áætluninni „virkjum pýramídana“ og að sitt fyrsta verk verði að láta mála hinn kunna Giza-sphinx pastelgrænan.

Leiðtoginn hnellni tók nokkur létt dansspor á lokaæfingu.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.

Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og að þau dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.

Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

Dressið er handspunnið af 300 tælenskum lögfræðingum á hefðbundnum lögfræðingataxta.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.

Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Brot úr snappi frá framsoknarfrenzy til bbbeibmaster.

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.

Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.

Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Útigangsmenn geta nú áhyggjulausir veitt sér til matar í miðborginni.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.

Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.

Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaðurinn er mjög „virkur“ í athugasemdum.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.

Og raunar sterku víni líka.

Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.

Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni og Sigmundur brugðu á leik fyrir ljósmyndara Baggalúts og rifu upp skuldavanda heimilanna með rótum í blíðunni í Grafningnum.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.

„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“

Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.

Viðey var óvenju blómleg í morgun.

Veður batnaði stórkostlega á höfuðborgarsvæðinu eftir að framsóknar- og sjálfstæðisflokkur hófu stjórnarmyndunarviðræður. Sérstaklega á Seltjarnarnesi, á Reykjanesi og í Garðabæ.

Sól skín í heiði, hiti fer ört hækkandi og hin svokallaða „hægri austanátt“ er allsráðandi.

Áfram er þó skítaveður úti á landi.

Ekki er ósennilegt að þessi fallegi framsóknarkoppur verði fyrir valinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að sannkallaðra stórtíðinda geti mögulega verið að vænta um helgina. Kannski.

„Jú, ég geri nú frekar ráð fyrir því,“ sagði Sigmundur Davíð þegar fjölmiðlar spurðu hann ítrekað hvort hann ætlaði sér að fara á salernið um helgina.

Sem er stórfrétt!

Ekki er talið ólíklegt að Sigmundur muni líka matast, klæða sig sjálfur og líta til veðurs um helgina. Og munu fjölmiðlar að sjálfsögðu fylgjast spenntir með.

Sigmundur átti „gott spjall“ við fulltrúa pírata í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið hraustlega á því undanfarna daga í „stjórnarmyndunarviðræðum.“ Hann hefur hitt fulltrúa allra flokka og „rætt áherslur Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili.“

Búast má við ákvörðun um stjórnarsamstarf síðar í dag, þegar panodilbirgðir flokkanna hafa verið uppfærðar.

Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Amfetamínfíklar

Munið kertafleytinguna til minningar um spíttið sem var gert upptækt.

Stúlku

vantar til morgunverka hjá öldruðum tvíburabræðrum. Greitt eftir sérstöku samkomulagi. Afgr. vísar á.

Stakur ermahnappur

tapaðist í miðbæ Reykjavíkur einhvern tíman á tímabilinu 1982-1994. Góð fundarlaun.

SódaStream

SódaStreamtæki, árgerð 1986 glataðist í Vesturbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Hafði mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendur. Góðum fundarlaunum heitið.

Óska eftir

stúlku/stúlkum til að skemmta sæmilega þekktum Yemenskum kvikmyndaleikstjóra yfir helgina. Gott kaup. A.v.á.

Til sölu

Úlfskinns-loðkápa (pels), notuð en í góðu standi. Verð 500 krónur. Ómissandi fyrir þann sem ferðast mikið á vetrum.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA