
Svo virðist sem kuldakastið sem gengur nú yfir landið eigi upptök sín á Bessastöðum, en svo virðist sem forsetinn hafi þar magnað upp gjörningaveður sem lið í kosningabaráttu sinni.
Að sögn gríðarlega hress almannatengils var ákveðið að fara þessa leið til að leggja áherslu á völd og mikilvægi forsetans og hefja kosningabaráttuna með „svolitlu trukki“. Embættið hafi því fest kaup á svokallaðri „veðurvél“ frá velunnurum þess í Asíu.
Munu fleiri aðilar hafa sýnt veðurvélinni mikinn áhuga, ekki síst útgerðamenn, sem sjá í þessu tækifæri til að tengja aftakaveður á Höfuðborgarsvæðinu í sumar beint við aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Ný ríkisstjórn Íslands verður í svokallaðri háskerpu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá nýju stjórninni, sem segist rosa spennt að fá að ráða — strax eftir sumarfrí. Eða fljótlega.
Þetta eru einu nýmælin í stjórnarsamstarfinu. Að öðru leyti verður hún eins og síðasta stjórn, nema „með færri kjeeellingum“ eins og það er orðað.

Hinum kunna skipstjóra og herragarðseiganda, Kolbeini Kjálkabít, hefur verið meinaður aðgangur að öllum helstu kommentakefum landsins, þ.á m. á DV, Vísi, Pressunni og Eyjunni.
Er það einkum vegna óheflaðs munnsöfnuðar og ógætilegs málfars, en nokkuð hefur verið kvartað undan honum á athugasemdakerfum undanfarið — einkum eftir að hann kallaði Eurovisionfara Íslands „loðkjammaðan, lagvilltan landkrabba frá Landeyjahöfn“.
„Fari það í milljón maðkétna mannætuhákarla, þessir landkrabbar geta bara étið útmigin ufsahöfuð frá Örfirisey,“ sagði Kolbeinn þegar hann var beðinn um álit sitt á banninu.

Bítillinn góðkunni sir Paul McCartney semur tónlistina í sumarsýningu Brúðubílsins í ár.
Er þetta að vonum mikil og góð kynning fyrir bítilinn geðþekka, og ekki síður fyrir litla, sérkennilega landið sem hann býr í — en það kallast England.
Þess má geta að gerð hefur verið brúða í líki sir Paul, sem mun leika á móti hinum þjóðþekkta Lilla apa. Munu þeir félagarnir leika í hómóerótískri ástarsenu sem ber heitið: Everybody's got something to hide except me and my monkey.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.
Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og að þau dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.
Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.
Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.
Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.
Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.
Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.
Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.
Og raunar sterku víni líka.
Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.
Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.
„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“
Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.
Fjölpóstur!
Óska eftir að kaupa allan fjölpóst merktan eða með myndum af Kjartani Magnússyni. A.v.á.
Innritun hafin!
Í allar deildir.
Konunglega tónlistarakademían í Grindavík.
Gefins
Fullt af gömlu ónýtu drasli. Einnig fæst ódýrt á sama stað 1000 púsla púsluspil sem vantar 327 púsl í.
A.v.á.
Tapað fundið
Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.
Stúlka
óskast nú þegar til að annast um heimsþekkt, franskt karlmódel í vikutíma. Frönskukunnátta ekki nauðsyn. A.v.á.
Vel með farið
eintak af spennusögunni „Þrír um leyndarmálið“ fæst í skiptum fyrir heillegar snjóþvegnar gallabuxur. Fullum trúnaði heitið.