Nýi formaðurinn hófst þegar handa við að lesa ársreikning félagsins, sem reyndist þegar upp var staðið vera hljóma- og textablöð við svokallaðan „brekkusöng.“

Nýr formaður hefur verið skipaður í stjórn Þorláksbúðarfélagsins. Honum er ætlað að halda lágmarksbókhald, kaupa blýanta og önnur ritföng „og reyna eftir fremsta megni að fokka ekki upp þeim fáu aurum sem eftir eru af þeim krónum sem félaginu tókst þó að kreista út úr ríkinu af miklu harðfylgi í gegnum klíkuskap,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá félaginu.

Kolbeinn var ekki par hrifinn af banninu.

Hinum kunna skipstjóra og herragarðseiganda, Kolbeini Kjálkabít, hefur verið meinaður aðgangur að öllum helstu kommentakefum landsins, þ.á m. á DV, Vísi, Pressunni og Eyjunni.

Er það einkum vegna óheflaðs munnsöfnuðar og ógætilegs málfars, en nokkuð hefur verið kvartað undan honum á athugasemdakerfum undanfarið — einkum eftir að hann kallaði Eurovisionfara Íslands „loðkjammaðan, lagvilltan landkrabba frá Landeyjahöfn“.

„Fari það í milljón maðkétna mannætuhákarla, þessir landkrabbar geta bara étið útmigin ufsahöfuð frá Örfirisey,“ sagði Kolbeinn þegar hann var beðinn um álit sitt á banninu.

Brúðugerðarmeistarar brúðubílsins hafa unnið þrotlaust að brúðunni í allan vetur.

Bítillinn góðkunni sir Paul McCartney semur tónlistina í sumarsýningu Brúðubílsins í ár.

Er þetta að vonum mikil og góð kynning fyrir bítilinn geðþekka, og ekki síður fyrir litla, sérkennilega landið sem hann býr í — en það kallast England.

Þess má geta að gerð hefur verið brúða í líki sir Paul, sem mun leika á móti hinum þjóðþekkta Lilla apa. Munu þeir félagarnir leika í hómóerótískri ástarsenu sem ber heitið: Everybody's got something to hide except me and my monkey.

Leiðtoginn hnellni tók nokkur létt dansspor á lokaæfingu.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.

Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og að þau dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.

Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

Dressið er handspunnið af 300 tælenskum lögfræðingum á hefðbundnum lögfræðingataxta.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.

Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Brot úr snappi frá framsoknarfrenzy til bbbeibmaster.

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.

Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.

Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Útigangsmenn geta nú áhyggjulausir veitt sér til matar í miðborginni.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.

Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.

Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaðurinn er mjög „virkur“ í athugasemdum.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.

Og raunar sterku víni líka.

Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.

Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni og Sigmundur brugðu á leik fyrir ljósmyndara Baggalúts og rifu upp skuldavanda heimilanna með rótum í blíðunni í Grafningnum.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.

„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“

Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.

Viðey var óvenju blómleg í morgun.

Veður batnaði stórkostlega á höfuðborgarsvæðinu eftir að framsóknar- og sjálfstæðisflokkur hófu stjórnarmyndunarviðræður. Sérstaklega á Seltjarnarnesi, á Reykjanesi og í Garðabæ.

Sól skín í heiði, hiti fer ört hækkandi og hin svokallaða „hægri austanátt“ er allsráðandi.

Áfram er þó skítaveður úti á landi.

Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Nornaveiðimenn athugið

Nornaveiðileyfin fást hjá okkur. Einnig nornablístrur, -gildrur og -bálkestir í miklu úrvaldi.

Galdrabrennsla Gunnars.

Akurnesingar!

Tökum vel á móti innflytjendunum! Eigum mikið magn af tjöru og fiðri á sérstöku tilboðsverði.
Netagerð Nikulásar.

Tilkynning frá Fiskistofu

Terlínjakkar, terlínbuxur, terlínskyrtur.
Margar stærðir, margir litir.

Prestar!

Terlínhempur, terlínkragar, terlínskikkjur, terlínkuflar.
Terlín & Guð - Laugavegi

Í fjarveru minni

til næstu áramóta gegnir hr. Ólafur Helgason störfum mínum.
Sveinn Gunnarsson, handrukkari.

Hvítþvottur

Tökum að okkur vandaðan hvítþott fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Mikið úrval af fyrirtaks hreinsiefnum. Fullum trúnaði heitið.

Þvottahús Þórmundar og Tuma

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA