„Kisi á Þingvöllum“, sem Ólafur gerði fyrir lýðveldishátíðina 1994.

Listaverk Ólafs Elíassonar, sem átti að vera miðdepill listahluta Ólympíuleikanna í London, hefur verið afþakkað.

Verkið krafðist þáttöku almennings, en í því átti fólk átti að anda inn og út fyrir hönd einstaklings, hreyfingar eða málstaðar og greina frá andardrættinum á sérstakri vefsíðu, á sjálfu Internetinu.

Þetta tímamótaverk átti að kosta milljón bresk pund, eða litlar tvö hundruð milljónir króna.

Nefndin sem útdeilir fé vegna leikanna ákvað hinsvegar að afþakka verkið með SMS skilaboðunum: „Do you think we're daft, you fu**ing Icelanders!?“

Dressið er handspunnið af 300 tælenskum lögfræðingum á hefðbundnum lögfræðingataxta.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.

Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Brot úr snappi frá framsoknarfrenzy til bbbeibmaster.

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.

Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.

Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.

Útigangsmenn geta nú áhyggjulausir veitt sér til matar í miðborginni.

Formenn sjálfstæðis- og framsóknarflokks hafa komist að samkomulagi um að afnema veiðigjald útigangsmanna.

Þetta umdeilda gjald hefur sem kunnugt er nær sligað þennan harðduglega hóp ógæfumanna- og kvenna á Íslandi — sem aðallega treystir á túrista- og mávaveiðar sér til framfærslu.

Þetta er það eina sem formennirnir hafa komið sér saman um, ef frá er talið að velja ljúffengt og dísætt jarðarberjamarmelaði ofan á pönnukökustafla dagsins.

Formaðurinn er mjög „virkur“ í athugasemdum.

Formaður Haðar, félags íslenskra kommentara, vill að sala á bjór og léttu víni verði gefin frjáls á athugasemdakerfum helstu netmiðla.

Og raunar sterku víni líka.

Hann segir óþolandi að geta ekki skrifað athugasemdir við fréttir og úthúðað fólki — og fengið sér glas af sérríi með — án þess að skottast í sífellu eftir nýrri flösku út í Vínbúð.

Þá vill hann gjarnan skoða lögleiðingu annarra fíkniefna og heimsendingu þeirra — til að „hressa aðeins upp á aksjónið“ á netinu.

Bjarni og Sigmundur brugðu á leik fyrir ljósmyndara Baggalúts og rifu upp skuldavanda heimilanna með rótum í blíðunni í Grafningnum.

Bjarni Ben og Sigmundur Davíð eyddu morgninum við létt garðyrkjustörf í Grafningnum. Að sögn aðstoðarmanns fulltrúa aðstoðarmanns Bjarna gróðursettu þeir meðal annars gulrótafræ og næpur.

„Þetta gengur allt vonum framar,“ sagði aðstoðarmaðurinn. „Sigmundur gerði litlar holur með litlu puttunum sínum og Bjarni gekk á eftir honum og sáði litlum fræjum með litlu lúkunni sinni. Svo skiptust þeir fallega á við að vökva. Þetta var bara fallegt.“

Búast má við að þeir félagar setji niður kartöflur með kvöldinu og leysi skuldavanda heimilanna fyrir hádegi á morgun.

Viðey var óvenju blómleg í morgun.

Veður batnaði stórkostlega á höfuðborgarsvæðinu eftir að framsóknar- og sjálfstæðisflokkur hófu stjórnarmyndunarviðræður. Sérstaklega á Seltjarnarnesi, á Reykjanesi og í Garðabæ.

Sól skín í heiði, hiti fer ört hækkandi og hin svokallaða „hægri austanátt“ er allsráðandi.

Áfram er þó skítaveður úti á landi.

Ekki er ósennilegt að þessi fallegi framsóknarkoppur verði fyrir valinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, væntir þess að sannkallaðra stórtíðinda geti mögulega verið að vænta um helgina. Kannski.

„Jú, ég geri nú frekar ráð fyrir því,“ sagði Sigmundur Davíð þegar fjölmiðlar spurðu hann ítrekað hvort hann ætlaði sér að fara á salernið um helgina.

Sem er stórfrétt!

Ekki er talið ólíklegt að Sigmundur muni líka matast, klæða sig sjálfur og líta til veðurs um helgina. Og munu fjölmiðlar að sjálfsögðu fylgjast spenntir með.

Sigmundur átti „gott spjall“ við fulltrúa pírata í gær.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur tekið hraustlega á því undanfarna daga í „stjórnarmyndunarviðræðum.“ Hann hefur hitt fulltrúa allra flokka og „rætt áherslur Framsóknarflokksins á komandi kjörtímabili.“

Búast má við ákvörðun um stjórnarsamstarf síðar í dag, þegar panodilbirgðir flokkanna hafa verið uppfærðar.

Hér sést verkamaður strita við lestur ægilangs athugasemdahala.

Lagt hefur verið til að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verði framvegis frídagur Facebook fíkla — einnig alþjóðlegur.

Helstu rökin fyrir þessu eru þau að verkafólk í dag geri hvort eð er lítið annað en að hanga á samfélagsmiðlum í vinnunni — og eins þegar heim kemur.

Því væri mun nær að gefa því hvíld frá þessu nýja kúgunartæki hinna vinnandi stétta, með öllum sínum lækum, brosköllum, potum, leikjabeiðnum og athugasemdum á borð við „sæta-sæta“ og „flott hjá þér!“

Þegar hefur verið stofnaður hópur á Facebook sem skýrir fyrirkomulagið nánar.

Skrípó
Lesbók
Þjóðbók
Smælki

Herbergi óskast

Reyklaus varhumar á þrítugsaldri óskar eftir að leigja herbergi með aðgangi að baði. Skilvísum greiðslum heitið.

Gylta!

Já Málfríður, þú ert gylta. Reynir.

Norðmenn!

Heja Norge!
Trond

Burðardýr

vantar til að flytja morfín og kólalauf til meginlands Evrópu. Þurfa að hafa aðgang að eigin bifreið. Ágæt þóknun. Afgr. vísar á.

Fallöxi

óska eftir að kaupa vel með farna fallöxi, til heimilis- og einkanota eingöngu. A.v.á.

Lifandi fallbyssukúla

(fjárhagslega sjálfstæð) óskar eftir að kynnast reyklausum síamstvíburum, helst kvenkyns. Með nánari kynni í huga. Afgreiðsla vísar á.

Kolfinna
Baggalútur er hýstur af alúð og umhyggju hjá ADVANIA