
„Þið eruð búin að eyðileggja allt,“ æpti dyggur áskrifandi sem mætti öskuvondur upp á ritstjórn Morgunblaðsins senmma í morgun og kvartaði undan því að „Mogginn sinn væri ónýtur“.
Var manninum mikið niðri fyrir þegar hann mætti á svæðið og heimtaði að fá að hitta „yfirprentmeistara“ blaðsins í eigin persónu. Hann róaðist ekki fyrr en eftir að hafa hlotið áfallahjálp, eiginhandaráritun Agnesar Bragadóttur og u.þ.b. tvo lítra af rótsterku kaffi.
Ritstjórn Morgunblaðsins vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið, en viðurkenndi þó að Ferdinand hafi verið „óvenju slappur í morgun“.

Ritstjórn Baggalúts er farin í langþráð og verðskuldað sumarleyfi.
Þetta var fyrsta starfsár Baggalúts, sem ritstjórnin var aðeins skipuð konum — og báru efnistök þess glögg merki. Hlutfallslega var minna talað um fantasíulesbíisma, mæjónes, boltaleiki og vélmenni en oft áður.
Heimsóknum fjölgaði um 230% á tímabilinu, ánægja viðskiptavina jókst um 42%, áskrifendum fjölgaði um 83% á ársgrundvelli og auglýsingatekjur voru í sögulegu lágmarki.
Hafið það gott í sumar og passið ykkur á myrkrinu.

Vorið er komið og þá fara býflugnadrottningarnar á stjá. Maður sem heldur því fram að hann sé býflugnadrottningin Margrét Þórhildur, hefur komið sér fyrir í hjólageymslu í sameign blokkar við Meistaravelli í Reykjavík, þar sem hann hyggst koma sér upp „búi“ fyrir sumarið.
Hann hefur auglýst eftir þernum í Fréttablaðinu og vonast til að búið verið komið í fullan gang um miðjan næsta mánuð.
„Hann Ármann á neðri hæðinni hefur alltaf verið óttalegur asni og þetta er fjórða sumarið í röð sem hann er í þessu býflugnastússi sínu,“ segir Svava S. Svavarsdóttir, formaður húsfélagsins. „Maður myndi náttúrulega stoppa þetta - en hann framleiðir gott hunang. Hann má eiga það.“

Lögregla fann í kvöld vinnubúðir þar sem tugir manna voru á fullu við að skrifa dónaskap, róg, níð, kerskni og skrítlur um Vigdísi Hauksdóttur, sjálfskipaðan fjölmiðlatrúð og þingkonu.
Við fystu sýn virtist sem allt þetta fólk væri í fullu starfi við að níða skóinn af Vigdísi og skrifa andstyggilega hluti um hana, málfar og útlit. Við nánari eftirgrennslan kom þó í ljós að fólkið gerði þetta að gamni sínu, í eigin frítíma.
Lögregla lét því búðirnar óáreittar.

Ný ríkisstjórn Íslands verður í svokallaðri háskerpu.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá nýju stjórninni, sem segist rosa spennt að fá að ráða — strax eftir sumarfrí. Eða fljótlega.
Þetta eru einu nýmælin í stjórnarsamstarfinu. Að öðru leyti verður hún eins og síðasta stjórn, nema „með færri kjeeellingum“ eins og það er orðað.

Hinum kunna skipstjóra og herragarðseiganda, Kolbeini Kjálkabít, hefur verið meinaður aðgangur að öllum helstu kommentakefum landsins, þ.á m. á DV, Vísi, Pressunni og Eyjunni.
Er það einkum vegna óheflaðs munnsöfnuðar og ógætilegs málfars, en nokkuð hefur verið kvartað undan honum á athugasemdakerfum undanfarið — einkum eftir að hann kallaði Eurovisionfara Íslands „loðkjammaðan, lagvilltan landkrabba frá Landeyjahöfn“.
„Fari það í milljón maðkétna mannætuhákarla, þessir landkrabbar geta bara étið útmigin ufsahöfuð frá Örfirisey,“ sagði Kolbeinn þegar hann var beðinn um álit sitt á banninu.

Bítillinn góðkunni sir Paul McCartney semur tónlistina í sumarsýningu Brúðubílsins í ár.
Er þetta að vonum mikil og góð kynning fyrir bítilinn geðþekka, og ekki síður fyrir litla, sérkennilega landið sem hann býr í — en það kallast England.
Þess má geta að gerð hefur verið brúða í líki sir Paul, sem mun leika á móti hinum þjóðþekkta Lilla apa. Munu þeir félagarnir leika í hómóerótískri ástarsenu sem ber heitið: Everybody's got something to hide except me and my monkey.

Lýðveldið Norður–Kórea hefur lýst yfir sigri í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision.
Krefst leiðtogi landsins, sem einmitt er mikill aðdáandi keppninnar, skilyrðislausrar uppgjafar Evrópuþjóða fyrir upphaf útsendingar í kvöld og að þau dragi lög sín til baka — ella muni hann gjöreyða Evrópu í „eilífu eldhafi eyðileggingar og skilyrðislausrar gagnkynhneigðar“ eins og það er orðað.
Ætlar hann sjálfur að flytja framlag Norður Kóreu í kvöld frammi fyrir heimsbyggðinni, en það ber titilinn „Ég á kjarnorkuvopn“.

„Já. Það er rétt. Ég flaug til Tælands og lét sauma á mig rautt silkidress úr smaragðslögðu, fílabeinssmurðu nashyrningshornshertu silki. Mjög smart,“ segir Birgitta Snæfjörð, heildrænn ráðgjafi.
Birgitta tók 17 milljóna króna kúlulán til þriggja vikna með veði í endurgreiðslu Framsóknarflokksins sem hún býst við að berist innan tíðar, „líklega bara um helgina.“

Öruggar heimildir eru fyrir því að stjórnarmyndunarviðræður Sigmundar Davíðs og Bjarna Benediktssonar fari nú eingöngu fram gegnum hraðsamskiptaappið Snapchat.
Aðstoðarmenn formannanna staðfestu þetta nú í morgun og sögðu að þeir Bjarni og Sigmundur hefðu verið „gersamlega trylltir að snappa í alla nótt“ og hefðu missæmileg myndskeið flogið á milli formannanna, við mismikla kátínu ráðgjafa þeirra.
Þeir sem vilja leggja sitt til viðræðanna geta sent snöpp á framsoknarfrenzy og bbbeibmaster — en fólk er þó beðið að stilla „líkamspartapics“ í hóf.
Veiðimenn ath.:
Af gefnu tilefni er varað er við mökum við hverskyns gæs-, and- og mávfugla. Sóttvarnarlæknir
Til sölu
Til sölu fallegur Range Rover, árgerð 2008 ekinn 2km. Skipti á bleiu koma til greina.
Icesave
Tek að mér að leysa Icesavedeilur af öllum stærðum og gerðum. Fullum trúnaði heitið. Sanngjörn laun. Einar.
Nauðungaruppboð
Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).
Hringberi
óskast til að bera máttarbaug inn í land öflugs myrkradróttins. Þarf að vera 18 ára eða eldri. Má ekki reykja.
Ertu að opna kirkju?
Eigum í miklu úrvali hempur, kerti, krossa, altari og orgel.
Minnum einnig á vinsælu prestaleiguna okkar.
Kirkjuval – Garðatorgi.