Frétt — Númi Fannsker — 19. 3. 2012
Óskipulögð glæpasamtök skjóta rótum
Meðlimir Mongolidos reka meðal annars ísbúðina Mongól-ís, þar sem seldar eru þrettán tegundir af varasalva.

Afar óskipulögð glæpasamtök, Mongolidos, hafa skotið rótum hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkislögreglustjóra.

Mongolidos eru með allra óskipulögðustu samtökum veraldar. Allir meðlimir eru formenn samtakanna, ritari þeirra er ólæs, gjaldkerinn er heftari af gerðinni Staplemaster II og félagatalið er aðeins til í höfði meðstjórnandans - en hann dó í dularfullu ryksuguslysi fyrir 12 árum.

Lögreglan hefur engar áhyggjur af komu samtakanna hingað til lands og telur engar líkur á átökum milli þeirra og annarra skipulagðari glæpasamtaka. Enda gætu meðlimir samtakanna „ekki skipulagt sokkaskipti vandræðalaust.“

Karlhóra

óskar eftir að kynnast góðri, skilningsríkri konu. Helst reyklausri.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Fr?tt ? Myglar ? 24. 4. 2023
Baggalútur kynnir nýtt lykilorð
Samningurinn handsalaður

Baggalútur hefur, í samvinnu við erlenda öryggissérfærðinga, skipt út öllum lykilorðum í tölvukerfum samsteypunnar fyrir nýtt, samræmt lykilorð af öflugustu gerð. Í takt við stefnu félagsins um gagnsætt jafnrétti verður nýja lykilorðið samnýtt af öllu starfsfólki félagsins, sem m.a. mun tryggja að engin veikburða lykilorð verða lengur í umferð.

Nýja lykilorðið, 8t0c$bMp7t^HNax1, uppfyllir ýtrustu kröfur um öryggi, bæði hvað varðar lengd og fjölbreytileika stafa.

Fr?tt ? Spesi ? 21. 9. 2022
Hálfviti segist ekki hafa kallað „hálfvita“ hálfvita
Hólmgeir kveðst alvarlega vera að hugsa um að stefna „hálfvitanum“ Þórði fyrir meiðyrði.

Hólmgeir Hrafnkelsson hálfviti segir í aðsendri grein á fréttavef Baggalúts að hann hafi aldrei kallað Þórð Þrándsson hálfvita.

„Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir á mig,“ segir Hólmgeir í greininni. „Mér er sama hvað þessi hálfviti heldur fram, ég hef aldrei kallað hann hálfvita.“

„Þessi hálfviti hefur ítrekað sýnt af sér hálfvitalega háttsemi og það er bara hreinn og klár hálfvitaskapur í honum,“ segir Hólmgeir að lokum.

Fr?tt ? Enter ? 7. 7. 2022
Freista þess að fá apabólu fyrstir Þingeyinga
Hópurinn var við æfingar fyrir leiðangurinn í morgun.

Sérleg rannsóknarnefnd skipuð nokkrum hugprúðum mönnum á miðjum aldri freistar þess nú að fá hina dularfullu „apabólu“ fyrstir Þingeyinga, svo vitað sé.

Að sögn talsmanns hópsins ríkir mikil eftirvænting innan hans, en einnig nokkur kvíði, sem vonlegt er. Þeir hafi kynnt sér „bóluna“ nokkuð vel á undanförnum vikum, lesið sér til, sótt námskeið og telja sig býsna vel í stakk búna til að takast á við þennan óútreiknanlega vágest, sem hefur heillað marga að undanförnu. Gera þeir ráð fyrir að ljúka undirbúningi í kvöld og halda utan, áleiðis til Berlínar, snemma í fyrramálið.

Óskum við þeim félögum alls hins besta.

Landi, sígarettur og bensín!

Bestu verðin í bænum!

Valdi sprútt

Fr?tt ? Enter ? 31. 5. 2021
Fann sameiginlegan snertiflöt
Hörður stóðst ekki mátið að snerta flötinn svolítið.

Hinn alræmdi fornleifafræðingur og mennþekkjari Hörður P. Einarz hefur uppgötvað sameiginlegan snertiflöt við ósamþykktan fornleifauppgröft við Holtagarða.

Er Hörður sannfærður um að snertiflöturinn sé býsna forn, eða jafnvel allt frá tímum verslunarveldisins Miklagarðs. Hefur hann fundið merki um káf, kám og jafnvel pot á fletinum.

Hörður vonast til að frekari rannsóknir á sameiginlega snertifletinum geti leitt í ljós ástæður þess að blómleg verslun leið undir lok á þessu svæði og hefur aldrei þrifist þar síðan.

Fr?tt ? Enter ? 22. 10. 2020
Betri en eiginlega allir
Baggalútur mun vera fyrsta framúrskarandi hljómsveit Íslandssögunnar.

Það er með feikimiklu stolti sem við tilkynnum að Baggalútur er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi, annað árið í röð. Með því erum við ekki endilega að gera lítið úr þeim 98% fyrirtækja á Íslandi sem eru það EKKI, og eru þar af leiðandi í tómu rugli, rekstrarlega — en samt — við erum augljóslega betri en eiginlega allir.

Við þökkum árangurinn fyrst og fremst miklum árangri á menningar– og upplifunarsviði, en aukin áhætta sem fyrirtækið tók á köntrí– og aðventumarkaði á sínum tíma, þvert á spár sérfræðinga, hefur skilað sér í auknu eiginfjárhlutfalli og traustum rekstri. Þá var tekin umdeild ákvörðun innan stjórnar seint á síðasta áratug um að hætta alfarið rekstri kaffivélar, sem hefur skilað sér margfalt til baka.

Fr?tt ? Enter ? 17. 2. 2020
Myndmerki Baggalúts uppfært
Merki Baggalúts er margverðlaunað og er jafnan talið best heppnaða íslenska myndmerkið.

Hið fornfræga myndmerki (e. lógó) Baggalúts hefur verið uppfært. Er það gert til að mæta betur kröfum samtímans um skjámiðlun, skölun, formlegt hagræði og breytta merkjaskynjun nútíma skjáneytenda, eins og segir í fréttatilkynningu.

Merki Baggalúts var upprunalega hannað af vestgotnesku listakonunni Gertrude Zeta–Zebra og standa angar þess fyrir gildi Baggalúts; traustgefni, samhygli, þrautsýni, metnúð og frumkvæðni. Þá stendur hringurinn fyrir kvenlægni og miðdepillinn fyrir mangó. Undirstrikið er svo villa í teikniforritinu Paint.

Eftir talsverða yfirlegu og hreinteikningu þar sem öll form, litir og útlínur myndmerkisins voru tekin til gagngerrar endurskoðunar, með tilliti til fagurfræðilegrar og tæknilegrar nálgunar, var ákveðið að færa merkið upp um þrjá svokallaða „pixla“ — til reynslu.

Þarftu að láta þjóðnýta fyrirtækið?

Hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar og við ráðleggjum þér.

Seðlabankinn – sameiningarafl í almannaeign

Fr?tt ? Enter ? 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Fr?tt ? Enter ? 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Fr?tt ? Enter ? 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Fr?tt ? Enter ? 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!



§ ÚR SAFNI BAGGALÚTS:
ÚR SAFNI — 3. 11. 2009 — Enter

„Þetta er bara bull og vitleysa,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, athafnamaður, en hann sætir nú opinberri rannsókn vegna meints mansals á …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 30. 5. 2002 — Númi Fannsker

Forseti Hæstaréttar boðaði til blaðamannafundar í morgun þar sem kynnt var vorlínan í einkennisklæðnaði Hæstaréttarlögmanna. Að sögn forsetans var þemað …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 1. 8. 2002 — Númi Fannsker

Stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur réði nú um mánaðamótin sérfræðing til að berjast gegn skipulagðri hryðjuverkastarfsemi nagdýra í görðunum. Verður spjótunum einkum …

»MEIRA

LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 4. 10. 2006 — Númi Fannsker

Þórður Þórðarson (Doddi tönn) gefur kost á sér í 1.-9. sæti í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Doddi hefur starfað við eignatilfærslu …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 25. 3. 2002 — Spesi

Óli Palli, dómnefndarmaður í Söngkeppni framhaldsskólanna, segir störf sín í dómnefndinni um helgina hafa verið byggð á leiðum misskilningi. “Það hringdi …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 12. 12. 2003 — Myglar

Arnar Jónasson, tæknifræðingur hjá Orkuveitunni, hefur hannað peysu sem numið getur tískubylgjur og lagað sig að þeim eftir þörfum. Peysan …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 3. 10. 2006 — Númi Fannsker

Spánverjinn Hector Gonzales Blanco de Marco Papanegre, var í gær sviptur titlinum feitasti maður Evrópu, sem hann hefur hampað frá …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 12. 2. 2010 — Enter

Unnbjartur Unu- og Helguson, femínisti, hefur fest kaup á svokölluðum kynjagleraugum, en með þeim hyggst hann skoða heiminn með róttækum …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 30. 10. 2003 — Enter

Sveitarstjóri Hólmavíkurhrepps fékk í gær tilkynningu um að Hólmavík hefði verið valin úr hópi ríflega átta trilljóna þéttbýliskjarna til að …

»MEIRA