Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 22. 2. 2002

Það varpaði skugga á annars vel heppnað Íslandsmeistaramót í Brids að Magnús Ver Magnússon, einn af efnilegri bridsleikurum landsins skyldi falla á lyfjaprófi. Magnús, sem lenti ásamt liði sínu Bjarminn í 62. sæti, var felmtri sleginn er Bagglútur náði tali af honum. “Ég skil bara ekkert í þessu. Eru nokkuð sterar í hafragraut eða lýsi?”, sagði bridsleikarinn geðþekki sem var að auki ávíttur tvisvar á mótinu fyrir munnsöfnuð og ofbeldishótanir í garð andstæðinga sinna. Reikna má með að Magnús hljóti allt að 3ggja vikna keppnisbann fyrir vikið.

Góð telpa

óskast til að gæta bjarndýrs. A.v.á.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
Frétt — Enter — 3. 12. 2019
Aðventulag Baggalúts 2019: Afsakið þetta smáræði
Þetta er auðvitað ekki neitt neitt.

Baggalútur sendir frá sér glænýtt aðventulag sem ber heitið „Afsakið þetta smáræði.” Þar bregður ljóðmælandi sér í hlutverk hins hógværa gestgjafa, sem afsakar lítilræðið sem er á boðstólnum. Lagið er áminning um að forðast asann og stressið í desember og setjast aðeins niður og slaka á. En um leið að fara nú ekki of geyst í áti, útbelgingi og ítroðningi.

Lag og texti er eftir Braga Valdimar Skúlason en ótal valinkunnir veislugestir komu að hljóð– og leikmynd lagsins. Guðm. Kristinn Jónsson stýrði upptökum í félagi við Sigurð Guðmundsson og Ágúst Bent leikstýrði krásum hlöðnu myndbandi, sem tekið var upp í hinum fornfræga skíðaskála í Hveradölum.

Hér má horfa á myndband við þetta lítilræði

Og hér er samtíningurinn á Spotify

Frétt — Enter — 17. 6. 2019
Nýtt lag: Appelsínugul viðvörun!
Rétt er að vara við því sem fyrir eyru ber.

Í tilefni einmuna veðurblíðu sendir hljómsveitin Baggalútur frá sér nýtt lag, sem ber heitið Appelsínugul viðvörun.

Lagið er bæði uppblásið og háfleygt og er því tilvalin 17. júní blaðra til að sleppa í loftið á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga. Til lukku með lýðveldið.

Lagið er áhlýðanlegt á tónsprænunni Spotify. Því má dreifa sem víðast.

Frétt — Enter — 27. 2. 2019
Endurmörkun Megasar langt á veg komin
Ný ásýnd Megasar verður afhjúpuð á næstu vikum.

Allsherjar endurmörkun og ímyndarsköpun tónlistarmannsins Megasar er nú á lokametrunum. Að sögn yfirstílista verkefnisins hefur Megas verið endurskoðaður frá grunni, hann straumlínulagaður og útlit hans fært til nútímahorfs — án þess þó að hreyfa um of við sérkennum hans og alþýðlegu yfirbragði.

Samhliða þessu hafa textar Megasar verið einfaldaðir til muna til að ná til breiðari markhóps, auk þess sem þeir hafa verið leitarvélabestaðir og þýddir yfir á bæði hollensku og finnsku til að ná til stærra markaðssvæðis.

„Breytingin er ótrúleg. Hann hefur fengið alveg nýja litapalettu, nýtt og ferskt lógó, auk þess sem söngkonan Birgitta Haukdal mun ljá honum rödd sína. Sem er spennandi nýjung.“

Þá verða ný gildi Megasar kynnt, en þau eru ÁKEFÐ, EINURÐ og RÁÐDEILD.

Rauðu ástarsögurnar

árgangur 1991-2001 til sölu. Innbundinn í fallegt rautt band með gyllingu. Afgreiðsla vísar á.

Frétt — Enter — 26. 2. 2019
Gamli Nói keyrði kassabíl – þú trúir aldrei hvað gerðist næst!
Nói kann ekki heldur að poppa popp.

Karlmaður á besta aldri, Nói Albínusarson, tók kassabíl bróðursonar síns traustataki snemma í morgun og ók af stað í honum, án þess að biðja um leyfi.

Því miður kunni Nói ekki á stjórntæki bílsins og mölbraut því sérsmíðaðan gírkassa bílsins, sem hafði einmitt unnið Ofvitann, nýsköpunarverðlaun ofurgáfaðra leikskólabarna.

Nói komst við illan leik úr bílnum, sem gereyðilagðist. Hann var þó hinn hressasti og vildi ólmur sýna blaðamanni hvernig hann sýður egg.

ÞÚ TRÚIR ALDREI HVAÐ GERÐIST NÆST!

Frétt — Enter — 13. 2. 2019
Jólasveinarnir fá jafnlaunavottun
Kertasníkir ásamt Fjölmiðlafælni, sem er í starfsnámi hjá fyrirtækinu.

Fyrirtæki íslensku jólasveinanna fékk í dag jafnlaunavottun, en félagið hefur á undanförnum árum tekið með skipulögðum hætti á kynbundnum launamun innan fyrirtækisins og komið á metnaðarfullri jafnréttisstefnu.

„Við erum mjög ánægðir, eða alltsvo ánægð með þetta. Það eru að vísu mestmegnis karlmenn, sem starfa hjá okkur, eða eingöngu eiginlega, sem stendur. En það breytir því ekki að þetta er mikill heiður fyrir okkur… öll,“ segir Kertasníkir Leppalúðason, framkvæmdastjóri mannauðs– og jafréttissviðs Jólasveinanna.

Hann segist jafnframt vonast til að fleiri konur (og raunar fólk af öllum mögulegum kynjum) bætist í þessa rótgrónu — og um margt íhaldssömu stétt — á næstu áratugum eða öldum. Hann tekur þó fram að öllu slík aðlögun taki tíma og þurfi auðvitað að ígrunda vel. Hann áætlar að í dag séu um 300 sveinar í starfsnámi hjá félaginu, „allt jú, mögulega karlmenn“.

Frétt — Enter — 7. 2. 2019
Fékk sér snjallkall
Kristín ásamt snjallkallinum, sem hún kallar Snata.

Kristín Framnes hefur tryggt sér fyrsta íslenska eintakið af svonefndum „snjallkalli“ af gerðinni Man–o–matic 3030b.

Er þetta þáttur í alhliða snjallvæðingu heimilisins, en Kristín hefur þegar fest kaup á snjallperum, snjalleldhúsi, snjallúri, snjallsjónvarpi, snjallbíl, snjallsímstöð, snjallþvottavél, snjallrúmi, snjalltrampólíni og snjallhamstri.

Snjallkallinn hlýðir öllum fyrirmælum fljótt og vel, heldur uppi lágmarkssamræðum og er með öllu áhugalaus um knattleiki. Hann talar lýtalausa íslensku og kann skil á öllum helstu heimilisstörfum. Þá kemur hann með sérstöku unaðsprógrammi, sem þó er enn í Beta–prófunum.

Fyrrum eiginmaður Kristínar fæst gefins, gegn því að vera sóttur.

Viðarsúla afhjúpuð í Friðey

En þér er heldur ekki boðið þangað.

Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2019
Bára og mögulegur vitorðsmaður nást á mynd
Bára (t.v.) og meintur vitorðsmaður hennar virðast vera í afar vönduðum dulargervum á myndinni.

Svo virðist sem Bára Halldórsdóttir, hljóðmeistari, og hugsanlegur vitorðsmaður hennar hafi náðst á mynd í öryggismyndavélakerfi Klaustur bars mánudaginn 19. nóvember. Er talið að þau hafi verið að koma fyrir hlerunarbúnaði og gera svokallað „sándtest,“ sem mun vera forsenda þess að gæði hljóðupptaka séu tryggð. Þau hafi svo kvöldið eftir beitt sérþekkingu sinni og háþróaðri upptökutækni til að taka upp spjall grunlausra gesta.

Á myndinni sjást Bára og meintur vitorðsmaður hennar taka ljósmyndir til að undirbúa aðgerðir kvöldið eftir. Sérstaka athygli vekur að þau eru í afar vönduðum dulargervum.

Frétt — Enter — 4. 2. 2019
Ný yfirflugfreyja WOW
Það kom sér vel fyrir Elísabetu að eiga allnokkur freyjuklæði á lager.

Elísabet Alexandra María Georgsdóttir, fyrrum drottning, hefur verið ráðin yfirflugfreyja hjá íslenska flugfélaginu WOWi.

Elísabet, eða Beta eins og hún er jafnan kölluð, er þekkt fyrir ríka þjónustulund, brennandi áhuga á ferðalögum og yfirburða kímnigáfu og því þótti hún smellpassa í hlutverkið.

Hún hefur ekki áhyggjur af því að takast á við nýtt hlutverk, komin á tíræðisaldurinn. „Nei, veistu, það er öllum hollt að skipta um starfsvettvang öðru hverju. Annars bara staðnar maður. Sjálf var ég svona að detta í netta kulnun.“

„Ég er líka pínu stressuð útaf þessu Brexit–kjaftæði öllu og vildi bara fá mér tryggari vinnu,“ sagði Elísabet að lokum áður en hún renndi sér fótskriðu eftir endilangri vélinni.

Frétt — Enter — 1. 2. 2019
Smári til Elísabetar
Það verður virkilega spennandi að fylgjast með Smára í framtíðinni. Hver skyldi hann fara næst?

Smári Snorrfinnsson hefur flutt lögheimili sitt frá móður sinni, Magðalenu, til Elísabetar Strömm, húsfreyju.

Smári er menntaður númiðlunartæknifræðingur og er með MBA gráðu í framvirkum sammiðlunarfræðum frá konunglega miðlunarskólanum í Drammen.

Að sögn Smára hefur hann lengi dreymt um að skipta um umhverfi og hlakkar hann til að takast á við ný og spennandi verkefni á heimili Elísabetar. Þar mun hann hafa yfirumsjón með öllum þvotti ásamt matseld á þriðju– og fimmtudögum, þá mun hann taka við alhliða dagskrárstjórn á skjámiðlum heimilisins ásamt því að vinna að þróun hreyfiáætlunar fyrir fressköttinn Bartólemeus.

Að sögn Magðalenu, móður Smára, og fyrrum vinnuveitanda verður leitast við að ráða sem fyrst í stöðu hans á heimilinu, eða einfaldlega festa kaup á snjallryksugu.

Frétt — Enter — 31. 7. 2018
Sorrí með mig
Lóa Hjálmtýsdóttir myndskreytti lagið af kostgæfni.

Hljómsveitin Baggalútur hefur sent frá sér nýtt dægurlag. Lagið heitir „Sorrí með mig“ og er ákaflega skemmtilegt og jafnframt áheyrilegt.

Lagið er nú komið á „Veraldarvefinn“, „Alnetið“ og jafnvel sjálft „Lýðnetið“ og er fáanlegt hjá eftirtöldum aðilum:

Hljóðskráargáttin Spotify

Myndskráargáttin YouTube

Við höfum aukinheldur, undir merkjum aukins gagnsæis, ákveðið að dreifa laginu á nótum. Þannig getur fólk betur áttað sig á verkinu, lært textann og jafnvel raulað laglínuna fyrir munni sér — áður en það hlýðir á það í fyrsta skipti.

Nótur má nálgast hér.



§ Spiladós




§ Úr safni Baggalúts:
ÚR SAFNI — 2. 4. 2007 — Enter

Kaffibandalagið Latté, sem starfað hefur frá áramótum í aðalstöðvum hugbúnaðarafyrirtækisins Tölvars, var í morgun leyst upp. Að sögn Egils Antonssonar, eins …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 30. 8. 2005 — Númi Fannsker

Kjartan Markan, eðlisfræðingur, hefur stofnað sína eigin „frjálsu og óháðu útvarpsstöð“. Í tilkynningu frá Kjartani kveðst hann vera „orðinn langþreyttur …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 15. 1. 2009 — Enter

„Hann er til í alvörunni, ég sá hann með mínum eigin augum, ég sver það,“ sagði háttsettur starfsmaður Kaupþings, eilítið …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Enter — Forystugrein
 
ÚR SAFNI — 31. 5. 2002 — Númi Fannsker

Ungur Mosfellingur, Darri Sverrisson, komst í morgun á sporbraut um jörðu, fyrstur Íslendinga. Í skeytum sem hann hefur sent frá …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 27. 3. 2002 — Spesi

Verkefnið “Dætur með í vinnuna” fór ekki aðeins fram í dagvinnu foreldranna heldur einnig í hinum ýmsu kvöldvinnum. “Þetta var alveg …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 20. 11. 2001 — Myglar

R-Listinn hefur tekið tilboði Abdullah Stungulah prins í Perluna, og verður hún send utan nú um mánaðarmótin. Prinsinn hefur í …

»MEIRA

LESBÓK — Enter — Dagbók
 
LESBÓK — Númi Fannsker — Dagbók
 
ÚR SAFNI — 29. 5. 2007 — Enter

Áhugamenn um stjörnuskoðun fullyrða að óvenju mikil umferð hvers kyns farartækja hafi verið um tunglið í kvöld. Er fullyrt að í …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 7. 10. 2005 — Enter

Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði í morgun húsleit hjá ráðgjafafélaginu Himnum Limited, sem er í eigu stjúpfeðganna Guðs Vignis Almáttugs og Jesúsar …

»MEIRA

ÚR SAFNI — 21. 4. 2006 — Herbert H. Fritzherbert

Nýleg rannsókn Landsspítala Háskóla- sjúkrahúss hefur leitt í ljós að svokallaðar tannréttingaspangir leiða nær undantekningarlaust til heilaskemmda. Í einstaka tilvikum …

»MEIRA