Enginn veit hver útbjó þennan smekklega en jafnframt forsmáða kaffibolla.

Icesave kaffibollinn, sem fylgt hefur um 194.000 fréttum, umfjöllunum og fréttaskýringum af Icesave málinu er hataðasta fyrirbrigði Íslandssögunnar, samkvæmt nýrri og býsna umfangsmikilli könnun.

Listinn er eftirfarandi:

1. Icesave kaffibollinn
2. Icesave sparibaukurinn
3. Móðuharðindin
4. Bahama
5. Icesave
6. Essasú
7. Gunnarshólmi
8. Einokunarverslun Dana
9. Fugladansinn
10. Ragnar Reykás

Þessi mynd náðist af þrjótnum úr eftirlitsmyndakerfi í íbúð tengdamóður hans.

Sturlaður Hafnfirðingur réðst á vefsíðu Baggalúts síðdegis í dag.

Maðurinn, sem er þekktur tölvuþrjótur og netníðingur, kom auga á síðuna á tölvuskjá tengdamóður sinnar og missti algerlega stjórn á skapi sínu.

Greip hann nálæga öxi og lét höggin dynja á tölvunni og ýmsum innanstokksmunum, ásamt því að brúka afar ókristilegan munnsöfnuð um ritstjórn Baggalúts, holdafar tengdamóðurinnar og Internetið almennt.

Vefsvæði Baggalúts og tengdamóðirin eru að mestu óskemmd eftir atvikið, en tölvan – sem var af asískri gerð – er gerónýt.

Áhöld til viðamikillar neyslu fundust í kjallara Seðlabankans.

Ónefndur bankaráðsmaður Seðlabankans, er ekki vanhæfur til að sinna verkefnum bankaráðsins þrátt fyrir að hafa hafa skipulagt stórar svall- og mannátsveislur hjá kunnu stórfyrirtæki á útrásartímanum svokallaða.

Þetta segir formaður bankaráðs Seðlabankans, sem segir viðkomandi starfsmann hafa unnið 'drullufínt starf' í bankaráðinu og vill ógjarnan missa hann.

„Þetta er bara eitt af því sem tíðkaðist á þessum árum. Ég held að allir geti verið sammála um að þetta sé ogguponsulítið óheppilegt fyrir viðkomandi – en það er nú engin ástæða til að gera mál úr þessu.“

Áætlað er að um 93% af bílaflota landsmanna sé nú á Reykjanesbrautinni.

Gríðarleg umferð er nú um Reykjanesbraut og hafa langar raðir myndast allt frá Hafnarfirði og að Keflavíkurflugvelli.

Svo virðist sem mikill ótti hafi gripið um sig meðal landsmanna eftir að ljóst var að VG fengi úthlutað nýju innanríkisráðuneyti.

Reynir lögregla eftir fremsta megni að hafa stjórn á mannfjöldanum, en reynist sérstaklega erfitt að hafa hemil á óttaslegnum sjálfstæðismönnum, sem margir hverjir eru gersamlega sturlaðir af hræðslu.

Nú er um að gera að skella sér í messu og setja feitt læk á ritningarlesturinn.

Þjóðkirkjan hefur ákveðið að bregðast við sívaxandi ímyndarvanda sínum með því að aðlaga sig nýrri tækni og auka um leið þjónustu við kirkjugesti.

Hefur svokölluðum like-hnöppum verið komið fyrir við hvert sæti í öllum kirkjum landsins, sem fólk getur smellt á kunni það vel að meta orð prestsins, sálmasöng eða orgelspil.

Hefur nýja kerfið mælst vel fyrir og gefist vel við skírnir, brúðkaup og almennt messuhald – þó eilítið hafi borið á misnotkun þess við jarðarfarir.

Þá hefur hinu úrsérgengna 'ameni' alfarið verið skipt út fyrir hátt og snjallt 'læk!' við messuhald.

Dæmigerður Maríuhani

Lögreglan hefur stöðvað umfangsmikla ræktun á Maríuhana á Suðurlandi. Maríuhaninn þykir mikið lostæti, ýmist reyktur eða bakaður. Hann er hins vegar í útrýmingarhættu, enda er Maríuhaninn sveimhuga og á afar erfitt með að einbeita sér. Þar að auki gengur erfiðlega að rækta stofninn upp sökum ofsókna hinna ýmsu yfirvalda.

Forsvarsemenn ræktunarinnar héldu því fram að um misskilning væri að ræða og að ræktunin væri lögleg. Lögreglan tók hins vegar ekki mark á því og lét umsvifalaust fella allan stofninn.

Úrræðið þykir í senn stílhreint og smekklegt.

Ríkisstjórnin kynnti i morgun nýtt úrræði fyrir skulduga einstaklinga og heimili; skuldagreiðslujöfnunaraðlögun.

Ekki er vitað hvernig úrræðið virkar, né fyrir hverja það er nákvæmlega - en vonast er til að það komi til með að nýtast sem flestum.

Páll verður framvegis í harðlæstri dagskrá eftir miðnætti á miðvikudögum.

Stöð 2 hefur tryggt sér útsendingarrétt á Páli Magnússyni, útvarpsstjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stöð 2, undirritaðri af Ara Edwald, að meðfylgjandi litlum broskalli og alþjóðlegu gleðiupphrópuninni 'LOL'.

Er þetta enn eitt áfallið fyrir RÚV á skömmum tíma, en samkvæmt heimildum Baggalúts eru líkur á að fleiri fastir dagskrárliðir fylgi í kjölfarið á næstu dögum – þ.á.m. táknmálsfréttir, Kastljós, auglýsingar og hin sívinsælu dagskrárlok.

Það er þó huggun harmi gegn að RÚV mun hafa tryggt sér útsendingar á Wallander til ársloka 2052.

Myndin tengist fréttinni ekki – þannig lagað.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Baggalúts stendur til að stokka ærlega upp í rikisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Í stuttu símaviðtali við Jóhönnu seint í nótt kom ýmislegt fróðlegt í ljós. Æringinn og 'flippmógúllinn' Ögmundur Jónasson mun 'koma ferskur inn í innanríkissjittið' um leið og utanþingsráðherrarnir Ragna 'Gothmálagella' og Gylfi 'partípúpa' Magnússon víkja.

Þá mun Álfheiður Ingadóttir, sem hefur að sögn Jóhönnu verið 'frámunalega þurr og leiðinleg í staffapartíum' víkja fyrir nýjum stuðmálaráðherra – Gutta 'Glitter'.

Ný og öflug loftnet á lóð fyrirtækisins tryggja að útsendingar Baggalúts munu nást á Vestfjörðum í vetur.

Samningar hafa náðst um endurfjármögnun og áframhaldandi starfsemi útgáfu- og afþreyingarrisans Baggalúts. Ljóst er að starfsemin verður áfram á Internetinu, en um tíma var útlit fyrir að hún yrði flutt alfarið yfir á textavarpið.

Meðal nýjunga á þessu 10. starfsári Baggalúts má nefna grímulausan áróður sem við kjósum að kalla BMX – Gallsteina, stórkostlega endurbætt útlit, sem hannað er af nemendum hannyrða- og fágunarskóla Sigþrúðar í Grafarholti – auk þess sem sérstakt tillit er tekið til farsímaunnenda, sem geta nú notið lystisemda Baggalúts á m.baggalutur.is.

Að gefnu tilefni skal þó tekið fram að Randver verður ekki með að þessu sinni.

Breiðhyltska panflautuundrið Jose Guðbrandsson leikur öll vinsælustu lög Jet Black Joe.

JET BLACK JOSE

Í nýjum og spennandi útsetningum eftir föður sinn.

Fréttaþulurinn snjalli Logi Bergmann fer á kostum í stórskemmtilegri revíu.

Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST

Hvers vegna að lesa fréttirnar þegar þú getur sungið þær?

Loksins, loksins! Tvö heitustu bönd landsins sameina krafta sína

EGÓ OG VEÐURGUÐIRNIR

fara hamförum öll fimmtudagskvöld

Gjörningaveisla á þorra! Missið ekki af gjörningi listamannsins Spóa, þar sem hann

ríður frjálshyggju-glyðrunni á slig!

Alla miðvikudaga á þorranum.

Logi Bergmann leikur á klarínettu Hófíar!

MIKKI MÚSÍKDAGAR

alla vikuna

Sjáið hinn óviðjafnanlega Herr Doktor Bóbó þegar hann tekur Icesavelögin og treður þeim

UPP Í TROMPETIÐ Á SÉR

Alla mánudaga í vetur!!!

Gleðileikurinn drepfyndni í flutningi hins sprenghlægilega Alþings

ICESAVE

alla daga fram að jólum.

frábær söngsýning þar sem þjóðlagasólóistinn frábæri

Keytar Islancio

leikur öll sín vinsælustu þjóðlög.

Náhirð Davíðs fer á kostum í óperettunni endalausu:

Helvítið hann Egill!

Sjáið Björn og alla hina hrauna af áfergju yfir sjónvarpsmanninn gullinhærða.

Vegna fjölda áskorana Húnvetnska þjóðlagapönkdúóið

Rassgat lýðveldisins

Öll kvöld vikunnar

Sólon á tali við áhugasaman fjárfesti

Það er óhætt að segja að það séu miklar sviptingar í íslenska fjármálaheiminum um þessar mundir. Fyrir stundu var Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans, ráðinn viðskiptastjóri ávöxtunardeildar Blóðbanka Íslands. Sólon á að baki mikla reynslu í fjármálaheiminum og tilfærsla hans hlýtur að teljast talsverð blóðtaka fyrir Búnaðarbankann. Að sögn bankastjóra Blóðbankans, Indriða Greipssonar, er Sólon mikill fengur fyrir bankann. "Sólon er reynslubolti í geiranum, og auk þess er hann B- sem kemur sér afar vel".

28/4/03 • Herbert H. Fritzherbert •
Baggalútur er hýstur með stolti hjá SKÝRR
Enter – Forystugrein
 
Enter – Dagbók
 
Númi Fannsker – Forystugrein
 
Enter – Gagnrýni
 
Enter – Forystugrein
 

Klæðskiptingar

Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.


Greiðendur afnotagjalda RÚV

ekki missa af táknmálsfréttum. Nýjar þulur. Ný tákn.

Ríkisútvarpið – Sjónvarp


Til sölu

lítið notað mannorð. Nokkuð flekkað - þarfnast viðgerðar og hreinsunar.
A.v.á.


Togarasjómenn athugið!

Dönsku blússurnar komnar. Margar stærðir.
Vélasala Einars.